Segir frá matarboði þar sem stjórnmál og fjármál runnu saman en enginn vildi skrifa í gestabókina
Seðla­bank­inn Finnur Ing­ólfs­son var seðla­banka­stjóri 2000-2002. Þá tók Ingi­mundur Frið­riks­son við af honum. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Segir frá matarboði þar sem stjórnmál og fjármál runnu saman en enginn vildi skrifa í gestabókina

Í nýút­kominni bók Gylfa Zoega er kvöld­verð­ar­boði í húsi Seðla­bank­ans við Ægisíðu lýst. Þar á seðla­banka­stjóri að hafa setið að snæð­ingi með við­skipta­fé­lögum sínum, skömmu áður en einka­væð­ing bank­anna átti sér stað árið 2003. Finnur Ing­ólfs­son, fyrrum seðla­banka­stjóri, kann­ast ekk­ert við að þetta hafi átt sér stað.

Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, segir í nýrri bók að einn þáver­andi seðla­banka­stjóra hafi boðið við­skipta­fé­lögum sínum til kvöld­verðar í húsi Seðla­bank­ans við Ægisíðu í aðdrag­anda einka­væð­ingar rík­is­bank­anna árið 2003. „Það þarf ekki að segja mikið meira. Fjármál, einka­rekstur, emb­ætt­is­rekstur og stjórn­mál voru öll á sömu hendi og því ekki við góðu að búast. Herra­menn­irnir vildu ekki skrifa í gesta­bók á leið­inni út. Nálægðin, það að þekkja til per­sóna og leik­enda, gerði það enn áhuga­verð­ara fyrir okkur hin að fylgj­ast með atburða­rásinni.“

Þetta kemur fram í upp­hafi eft­ir­mála bók­ar­innar „Umbrota­tímar – Hag­fræði­skrif 2009-2023“ sem Gylfi gaf út skömmu fyrir jól. Bókin hefur að geyma greinar um efna­hags­mál sem Gylfi skrif­aði á umræddu tíma­bili. 

Við lok eft­ir­mál­ans minn­ist Gylfi aftur á umrætt mat­ar­boð og gerir það að sam­nefn­ara yfir það sem var að í íslensku sam­fé­lagi á árunum sem leiddu til banka­hruns­ins haustið 2008. Ár þar sem …

Kjósa
108
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    S-hópurinn keypti en borgaði eingöngu með undirskriftum! Eitt stærsta afrek Davíðs Oddssonar í afhendingu ríkiseigna fyrir ekki neitt!
    1
  • RGG
    Ragnar Georg Gunnarsson skrifaði
    +
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Hefur dregið úr þessu ástandi? Spilling grasserar í íslensku samfélagi mjög víða
    4
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Spllingin er svo mikil á Íslandi að muna allt sem gert var getur stundum valdið spilltustu mönnum hugarangri !
    11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Einkavæðing bankanna

FréttirEinkavæðing bankanna

Finnur Ing­ólfs­son „skamm­ast“ sín út af blekk­ingum í einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans

Finnur Ing­ólfs­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi ráð­herra, segir að hann skammist sín fyrir að hafa ekki séð í gegnum þann blekk­ing­ar­leik sem einka­væð­ing Bún­að­ar­bank­ans var á sínum tíma. Með orðum sínum á Finnur við meinta aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­hausers að við­skipt­unum sem reynd­ust vera fals.
FréttirEinkavæðing bankanna

Umboðs­maður telur einka­væð­ingu bank­anna gott sem fullrann­sak­aða

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hefur nú til skoð­unar hvort hrinda eigi í fram­kvæmd þings­á­lykt­un­inni frá 2012 um rann­sókn á einka­væð­ingu bank­anna. Lög­fræð­ingur sem starf­aði með tveimur rann­sókn­ar­nefndum Alþingis telur rann­sókn­ar­spurn­ingar sem fylgdu þings­á­lykt­un­inni van­hugs­aðar og umboðs­maður Alþingis telur ólík­legt að sér­stök rann­sókn á einka­væð­ingu bank­anna leiði fram nýjar mark­verðar upp­lýs­ingar.

13 mín. lestur

FréttirEinkavæðing bankanna

Ólafur Ólafsson lýsir póli­tískri spill­ingu á Íslandi í varn­ar­ræðu sinni

Fjár­festir­inn Ólafur Ólafsson, sem rann­sókn­ar­nefnd um einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans segir hafa staðið að mála­mynda­gern­ingi til að blekkja yfir­völd, sakar ráð­herra Fram­sókn­ar­floks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins um póli­tísk inn­grip. „Við vorum hafðir að leiksoppum í póli­tísku leik­riti,“ segir Ólafur meðal ann­ars.

Myndband

Mest lesið undanfarið ár