Aðilarnir að plottinu eru umsvifamiklir í íslensku viðskiptalífi í dag

Ólafur Ólafsson, Guð­mundur Hjalta­son og Hreiðar Már Sig­urðs­son neit­uðu allir að mæta í skýrslu­töku vegna rann­sókn­ar­innar á einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans. Þeir eru nú umsvifa­miklir í við­skipta­líf­inu, meðal ann­ars í fast­eigna­við­skiptum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hót­el­upp­bygg­ingu.

Aðilarnir að plottinu eru umsvifamiklir í íslensku viðskiptalífi í dag

Helstu lyk­il­menn í áætlun Ólafs Ólafs­sonar um að blekkja almenn­ing í kaupum sínum á Bún­að­ar­bank­anum af íslenska rík­inu eru vel stæðir athafna­menn sem orðnir eru umsvifa­miklir hér á landi í ferða­þjón­ustu og bygg­ing­ar­geir­anum.

Fjórir þeirra ein­stak­linga sem Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis boð­aði til skýrslu­töku vegna rann­sókn­ar­innar á einka­væð­ingu Bún­að­ar­banka Íslands og aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaup­unum neit­uðu að mæta í skýrslu­töku á vegum nefnd­ar­innar. Nefndin varð því að beina því til Hér­aðs­dóms Reykja­víkur að tekin yrði skýrsla af þeim. Þetta eru þeir Ólafur Ólafsson, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Eglu hf., Guð­mundur Hjalta­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri sama félags, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­for­stjóri Kaup­þings og  Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings.

Ólafur og Guð­mundur voru í for­svari fyrir félagið Eglu sem var stærsta félagið sem tók þátt í kaup­unum á nær helm­ings­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum árið 2002. Nú hefur komið í ljós að þeir nýttu skatta­skjól til að fela raun­veru­lega slóð eign­ar­halds­ins og láta líta út fyrir að þýski bank­inn Hauck & Auf­häuser væri aðili að kaup­unum. Þar að auki runnu millj­arðar króna til félags í skatta­skjóli, sem ekki er vitað hver á.

Ólafur, Hreiðar Már og Sigurður fengu allir þunga dóma í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða sem sner­ist um að láta svo líta út að fjár­festir frá Katar væri að leggja fé í Kaupþing, þegar raunin var að kaupin voru fjár­mögnuð á laun af Kaup­þingi. Þeir voru allir látnir lausir á síð­asta ári eftir að hafa setið inni í rúmt ár. 

Ólafur er nú afar umsvifa­mik­ill í fast­eigna­við­skiptum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Hreiðar Már hefur haslað sér völl í ferða­þjón­ustu með upp­bygg­ingu fjölda hót­ela á land­inu og Guð­mundur er síðan fram­kvæmda­stjóri fast­eigna­fé­lag­anna Sjö­stjörn­unnar og Suð­ur­húsa. 

Ólafur Ólafsson: Fasteignaviðskipti í borginni

Af fram­burðum fyrr­ver­andi stjórn­ar­manna Kers hf. og for­svars­manna ann­arra félaga í S-hópnum fyrir rann­sókn­ar­nefnd­inni má beint og óbeint ótví­rætt ráða að hvata­mað­ur­inn og leið­tog­inn í sam­starfi S-hóps­ins um kaupin á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum hafi verið Ólafur Ólafsson. Rannsókn nefnd­ar­innar þykir einnig hafa leitt ótví­rætt í ljós að frá upp­hafi til enda var þátt­taka S-hóps­ins í einka­væð­ing­ar­ferli rík­is­bank­anna, bæði Lands­bank­ans fyrst í stað og síðar Bún­að­ar­bank­ans, í öllum meg­in­at­riðum falin í hendur Ólafi og leidd af honum og mönnum sem líta verður á sem trún­að­ar­menn hans. 

Ólafur var síðar dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi fyrir aðkomu sína að Al Thani-mál­inu, sem sner­ist um að láta svo líta út að fjár­festir frá Katar væri að leggja fé í Kaupþing, þegar raunin var að kaupin voru fjár­mögnuð á laun af Kaup­þingi með aðild Ólafs. 

Ólafur er nú gríð­ar­lega umsvifa­mik­ill í fast­eigna­við­skiptum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Reykja­vík­ur­borg samdi við félag hans, Festi, um að byggja 332 íbúðir í nýju hverfi við ósa Elliðaár, Voga­byggð. Félag hans kom einnig að hót­el­bygg­ingu á Suð­ur­lands­braut 18 og þá kemur félag í hans eigu að hót­el­bygg­ingu á Héð­ins­reitnum í Vesturbæ Reykja­víkur.  

Guðmundur Hjaltason: Framkvæmdastjóri fasteignafélags

Guðmundur Hjaltason
Guð­mundur Hjalta­son Rekur nú ferða­þjón­ustu.

Rann­sókn­ar­nefndin telur að Guð­mundur Hjalta­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Eglu og Samskipa, hafi verið aðili að fléttu Ólafs. Guð­mundur átti virkan þátt í gerð leyni­legu bak­samn­ing­anna við Hauck & Auf­häuser og var á sama tíma einn helsti samn­inga­maður S-hóps­ins við fram­kvæmda­nefnd um einka­væð­ingu um kaupin á Bún­að­ar­bank­anum. 

Á meðal gagna rann­sókn­ar­nefndar eru afrit tölvu­póst­sam­skipta sem áttu sér stað á tíma­bil­inu 10. til 16. jan­úar 2003 á milli Guð­mundar og full­trúa Ólafs Ólafs­sonar í sölu­ferli Bún­að­ar­bank­ans, Bjarka Diego, starfs­manns Kaup­þings hf. og Martin Zeil, for­stöðu­manns lög­fræðis­viðs Hauck & Auf­häuser. Í þessum tölvu­póst­sam­skiptum voru drög að bak­samn­ing­unum og skjölum sem tengd­ust þeim beint eða óbeint send ítrekað á milli mann­anna þriggja með breyt­ingum, við­bótum og/eða athuga­semdum hverju sinni, allt uns loka­drög bak­samn­ing­anna lágu fyrir síðla kvölds 15. jan­úar 2003, það er kvöldið fyrir und­ir­skrift þeirra - og kaup­samn­ings S-hóps­ins og íslenska rík­is­ins um hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum. 

Eitt af því sem stóð eftir að ganga frá í samn­ing­unum voru fjár­hags­leg atriði sem hlutu að velta á því hvernig um semd­ist end­an­lega á milli íslenska rík­is­ins og S-hóps­ins um kaupin á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum. Einkum er þá átt við það kaup­verð sem S-hóp­ur­inn skyldi greiða en það lá ekki end­an­lega fyrir fyrr en undir lok þeirra samn­inga­við­ræðna. Upp­lýs­ingar um slík atriði voru auð­veld­lega aðgengi­legar þeim sem stóðu að bak­samn­ing­unum jafn­skjótt og þær lágu fyrir milli rík­is­ins og S-hóps­ins vegna fyrr­greindrar þátt­töku Guð­mundar Hjalta­sonar af hálfu S-hóps­ins í samn­inga­við­ræð­unum við íslensk stjórn­völd. Gögn rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar sýna að Guð­mundur kom upp­lýs­ingum og gögnum úr þeim samn­inga­við­ræðum, þar meðal upp­lýs­ingum um verð þegar samið hafði verið um það atriði, á fram­færi við þá sem stóðu með honum að gerð bak­samn­ing­anna.

Guð­mundur Hjalta­son var í hér­aðs­dómi dæmdur í níu mán­aða fang­elsi fyrir aðild sína að Vafn­ings­mál­inu svo­kall­aða árið 2012, sem fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs Glitnis, en síðar sýkn­aður í Hæsta­rétti. Í dómi Hæsta­réttar kom fram að eng­inn vafi hafi leikið á ásetn­ingi mann­anna, en að skil­yrði þess að sak­fellt sé fyrir umboðs­svik sé að fyrir liggi að tjón hafi orð­ið. Ákæru­valdið hafi ekki sýnt fram á að hátt­semi Lárusar Welding, fyrr­ver­andi banka­stjóra Glitnis, og Guð­mundar hafi falið í sér slíka áhættu.

Guð­mundur er nú meðal ann­ars stjórn­ar­maður og pró­kúru­hafi í félag­inu Stemmu hf. sem ráð­gerir að opna eld­fjalla- og jarð­skjálfta­mið­stöð­ina Lava Centre á Hvols­velli í sumar. Þá er Guð­mundur einnig fram­kvæmda­stjóri fast­eigna­fé­lag­anna Sjö­stjörn­unnar og Suð­ur­húsa sem meðal ann­ars eiga nýbygg­ing­una við Hafn­ar­stræti 17-19, en Icelandair hótel stefna að opnun hót­els í hús­inu á árinu. 

Öll ofan­greind félög eru í meiri­hluta­eigu Skúla Gunn­ars Sig­fús­son­ar, sem oft­ast er kenndur við Subway.

Hreiðar Már Sigurðsson: Umsvifamikill hóteleigandi

Hreiðar Már Sigurðsson
Hreiðar Már Sig­urðs­son

Afrit flestra fyrr­greindra tölvu­pósta voru send á Hreiðar Má Sig­urðs­son, þá aðstoð­ar­for­stjóra Kaup­þings.

Hreiðar Már var síðar dæmdur í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings sem for­stjóri bank­ans og í Al Thani-mál­inu ásamt Ólafi Ólafs­syni. Brot þeirra var við­skiptaflétta sem sner­ist um að veita sjeik Al Thani lán á laun fyrir kaupum á fimm pró­senta hlut í Kaup­þingi til að gefa til kynna betri stöðu bank­ans en raun var. Um sýnd­ar­við­skipti var að ræða. Hreiðar Már var leystur úr haldi í maí síð­ast­liðnum eftir að hafa afplánað 13 og hálfan mánuð af fimm og hálfs árs fang­els­is­dómi. Hreiðar Már hefur síðan þá hlotið tvo við­bót­ar­dóma; ann­ars vegar í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings þar sem Hæsti­réttur bætti sex mán­uðum við dóm hans og hins vegar í Marple-mál­inu svo­kall­aða þar sem Hreiðar var sömu­leiðis dæmdur í sex mán­aða fang­elsi. Hæsti­réttur ógilti hins vegar nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms í Marple-mál­inu í febr­úar og vís­aði því aftur í hérað. 

Hreiðar Már hefur á und­an­förnum árum haslað sér völl í ferða­þjón­ust­unni á und­an­förnum árum í gegnum fyr­ir­tækið Gistiver með rekstri hót­ela og gisti­heim­ila á borð við lúx­us­hót­elið ION á Nesja­völlum við Þing­valla­vatn, ION City Hotel á Lauga­vegi, Hótel Berg í Keflavík, Hótel Búðir á Snæ­fells­nesi og Hótel Egilsen og gisti­heim­ilið Bænir og brauð í Stykk­is­hólmi. 

Bjarki Diego: Eigandi lögmannsstofu

Bjarki Diego
Bjarki Diego Vann að gerð bak­samn­ing­anna við Hauck & Auf­häuser.

Bjarki Diego starf­aði sem lög­fræð­ingur í Kaup­þingi hf. þegar S-hóp­ur­inn festi kaup á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum. Samkvæmt tölvu­póst­sam­skiptum vann Bjarki helst að gerð bak­samn­ing­anna við Hauck & Auf­häuser. Tölvu­póst­arnir og skjöl sem þeim fylgdu í við­hengjum, einkum þá drögin að bak­samn­ing­unum á hverjum tíma með breyt­ingum og við­bótum frá einni útgáfu til ann­arrar, bera með sér að hafa að meg­in­stefnu verið send á milli og samin eða full­gerð af Guðmundi Hjalta­syni, Bjarka Diego og Martin Zeil, for­stöðu­manns lög­fræðis­viðs Hauck & Auf­häuser. 

Bjarki var síðar dæmdur í tveggja og hálfs árs fang­elsi fyrir umboðs­svik í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings þegar starfs­menn bank­ans tóku ákvörðun um að lána eigna­lausum skúffu­fé­lögum háar fjár­hæðir árin 2007 til 2008. 

Bjarki er nú einn eig­enda lög­manns­stof­unnar BBA sem veitir meðal ann­ars þjón­ustu er varðar sam­runa og yfir­tökur, banka og fjár­mála­fyr­ir­tæki og verð­bréfa­mark­aðs­rétt. Bjarki er einnig stjórn­ar­maður í Þrí­hnúkum ehf. sem selur ferðir ofan í Þrí­hnúka­gíg. 

Sigurður Einarsson: Starfsmaður Virtus

Sigurður Einarsson
Sigurður Ein­ars­son

Sigurður Ein­ars­son var for­stjóri Kaup­þings hf. þegar kaupin á Bún­að­ar­bank­anum fóru fram. Að mati nefnd­ar­innar liggur fyrir að Sigurður fékk sendar upp­lýs­ingar í tölvu­póstum um lán­veit­ingu Kaup­þings til Welling & Partners og fyr­ir­mæli um sím­greiðslur vegna þess láns inn á reikn­ing félags­ins hjá Hauck & Auf­häuser. Af gögnum rann­sókn­ar­nefndar verður hins vegar ekki ráðið með óyggj­andi hætti hvort Sigurður hafi á þeim tíma öðl­ast vit­neskju um gerð bak­samn­ing­anna og efni þeirra, enda verður hvorki séð að hann hafi komið að ráð­stöf­unum þeim tengdum eða sent öðrum upp­lýs­ingar eða fyr­ir­mæli þar um. Líkt og Ólafur, Guð­mundur og Hreiðar Már neit­aði Sigurður hins vegar að mæta fyrir skýrslu­töku hjá nefnd­inni.

Sigurður var dæmdur í fjög­urra ára fang­elsi í Al Thani mál­inu og lauk afplánun síð­asta vor. Hæsti­réttur dæmdi Sigurður þar að auki til sex mán­aða hegn­ing­ar­auka í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings í októ­ber síð­ast­liðnum. 

DV greindi frá því síð­asta sumar að Sigurður Ein­ars­son hefði hafið störf hjá fyr­ir­tæk­inu Virtus - Bókhald og ráð­gjöf. Fram­kvæmda­stjóri Virtus, Þorkell Guð­jóns­son, er einnig fram­kvæmda­stjóri félags­ins Rhea ehf. sem eign­að­ist sum­ar­hús sem Sigurður byggði í Norð­ur­ár­dal í Borg­ar­firði. Athygli vakti þegar Sigurður hót­aði manni ofbeldi við sum­ar­bú­stað­inn síð­ast­liðið vor. „Farðu svo ég þurfi ekki að berja þig,“ sagði Sigurður við veg­far­anda sem tók mynd­band af atvik­inu.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkavæðing bankanna

ViðskiptiEinkavæðing bankanna

Segir frá mat­ar­boði þar sem stjórn­mál og fjár­mál runnu saman en eng­inn vildi skrifa í gesta­bók­ina

Í nýút­kominni bók Gylfa Zoega er kvöld­verð­ar­boði í húsi Seðla­bank­ans við Ægisíðu lýst. Þar á seðla­banka­stjóri að hafa setið að snæð­ingi með við­skipta­fé­lögum sínum, skömmu áður en einka­væð­ing bank­anna átti sér stað árið 2003. Finnur Ing­ólfs­son, fyrrum seðla­banka­stjóri, kann­ast ekk­ert við að þetta hafi átt sér stað.
FréttirEinkavæðing bankanna

Finnur Ing­ólfs­son „skamm­ast“ sín út af blekk­ingum í einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans

Finnur Ing­ólfs­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi ráð­herra, segir að hann skammist sín fyrir að hafa ekki séð í gegnum þann blekk­ing­ar­leik sem einka­væð­ing Bún­að­ar­bank­ans var á sínum tíma. Með orðum sínum á Finnur við meinta aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­hausers að við­skipt­unum sem reynd­ust vera fals.
FréttirEinkavæðing bankanna

Umboðs­maður telur einka­væð­ingu bank­anna gott sem fullrann­sak­aða

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hefur nú til skoð­unar hvort hrinda eigi í fram­kvæmd þings­á­lykt­un­inni frá 2012 um rann­sókn á einka­væð­ingu bank­anna. Lög­fræð­ingur sem starf­aði með tveimur rann­sókn­ar­nefndum Alþingis telur rann­sókn­ar­spurn­ingar sem fylgdu þings­á­lykt­un­inni van­hugs­aðar og umboðs­maður Alþingis telur ólík­legt að sér­stök rann­sókn á einka­væð­ingu bank­anna leiði fram nýjar mark­verðar upp­lýs­ingar.

13 mín. lestur

FréttirEinkavæðing bankanna

Ólafur Ólafsson lýsir póli­tískri spill­ingu á Íslandi í varn­ar­ræðu sinni

Fjár­festir­inn Ólafur Ólafsson, sem rann­sókn­ar­nefnd um einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans segir hafa staðið að mála­mynda­gern­ingi til að blekkja yfir­völd, sakar ráð­herra Fram­sókn­ar­floks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins um póli­tísk inn­grip. „Við vorum hafðir að leiksoppum í póli­tísku leik­riti,“ segir Ólafur meðal ann­ars.

Myndband

Mest lesið

3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár