Benedikt ósammála Bjarna Benediktssyni – vill ljúka rannsókn á sölu bankanna

For­sæt­is­ráð­herr­ann Bjarni Bene­dikts­son vill ekki nán­ari rann­sókn á einka­væð­ingu bank­anna, en Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra segir svar sitt ein­falt: Það þurfi að ljúka rann­sókn. Hann hefur skrifað Fjár­mála­eft­ir­lit­inu bréf vegna kaupa vog­un­ar­sjóða í Arion banka.

Benedikt ósammála Bjarna Benediktssyni – vill ljúka rannsókn á sölu bankanna

„Svar mitt er ein­falt. Jú, það er ástæða til að ljúka rann­sókn á þessu ferli,“ sagði Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra á Alþingi rétt í þessu, um hvort rann­saka ætti nánar einka­væð­ingu rík­is­bank­anna árið 2003.

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra lýsti í gær and­stöðu sinni við að nánar yrði rann­sakað hvernig ríkið stóð að einka­væð­ingu á Lands­bank­anum og Bún­að­ar­bank­anum árin 2002 til 2003. Að mati Bjarna hefur einka­væð­ingin verið rann­sökuð nægi­lega vel. Hann vildi þó draga lær­dóm af því sem gerð­ist í einka­væð­ing­unni. „Fyrir mína parta er ekk­ert aðkallandi að skoða varð­andi sölu bank­anna sem átti sér stað fyrir nærri fimmtán árum,“ sagði hann.

Í gær birt­ist skýrsla rann­sókn­ar­nefndar sem sýndi að aðkoma þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaupum S-hóps Ólafs Ólafs­sonar athafna­manns, Finns Ing­ólfs­sonar og fleiri, að kaupum á kjöl­festu­hlut Bún­að­ar­banka af rík­inu, hefði verið blekk­ing.

Benedikt lét orðin falla í svari við fyr­ir­spurn Katrínar Jak­obs­dóttur um afstöðu hans til frek­ari rann­sókna á einka­væð­ingu rík­is­ins á fjár­mála­stofn­unum. 

Ræðir við Fjármálaeftirlitið um eignarhald Arion banka

Benedikt greindi frá því á Alþingi í morgun að hann hefði skrifað Fjár­mála­eft­ir­lit­inu bréf með spurn­ingum um raun­veru­legt eign­ar­hald kaup­enda á þriðj­ungs­hlut í Arion banka. 

„Aftur er svar mitt ein­falt. Ég tel að það sé afar mik­ill­vægt að það sé gagn­sætt ferli við sölu bank­anna. Ferli sem er hafið yfir alla gagn­rýni. Ferli þar sem allir sitja við sama borð,“  sagði hann.

Hann sagði stofn­anir hafa brugð­ist herfi­lega á sínum tíma. „Það má ekki end­ur­taka sig“. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkavæðing bankanna

ViðskiptiEinkavæðing bankanna

Segir frá mat­ar­boði þar sem stjórn­mál og fjár­mál runnu saman en eng­inn vildi skrifa í gesta­bók­ina

Í nýút­kominni bók Gylfa Zoega er kvöld­verð­ar­boði í húsi Seðla­bank­ans við Ægisíðu lýst. Þar á seðla­banka­stjóri að hafa setið að snæð­ingi með við­skipta­fé­lögum sínum, skömmu áður en einka­væð­ing bank­anna átti sér stað árið 2003. Finnur Ing­ólfs­son, fyrrum seðla­banka­stjóri, kann­ast ekk­ert við að þetta hafi átt sér stað.
FréttirEinkavæðing bankanna

Finnur Ing­ólfs­son „skamm­ast“ sín út af blekk­ingum í einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans

Finnur Ing­ólfs­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi ráð­herra, segir að hann skammist sín fyrir að hafa ekki séð í gegnum þann blekk­ing­ar­leik sem einka­væð­ing Bún­að­ar­bank­ans var á sínum tíma. Með orðum sínum á Finnur við meinta aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­hausers að við­skipt­unum sem reynd­ust vera fals.
FréttirEinkavæðing bankanna

Umboðs­maður telur einka­væð­ingu bank­anna gott sem fullrann­sak­aða

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hefur nú til skoð­unar hvort hrinda eigi í fram­kvæmd þings­á­lykt­un­inni frá 2012 um rann­sókn á einka­væð­ingu bank­anna. Lög­fræð­ingur sem starf­aði með tveimur rann­sókn­ar­nefndum Alþingis telur rann­sókn­ar­spurn­ingar sem fylgdu þings­á­lykt­un­inni van­hugs­aðar og umboðs­maður Alþingis telur ólík­legt að sér­stök rann­sókn á einka­væð­ingu bank­anna leiði fram nýjar mark­verðar upp­lýs­ingar.

13 mín. lestur

FréttirEinkavæðing bankanna

Ólafur Ólafsson lýsir póli­tískri spill­ingu á Íslandi í varn­ar­ræðu sinni

Fjár­festir­inn Ólafur Ólafsson, sem rann­sókn­ar­nefnd um einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans segir hafa staðið að mála­mynda­gern­ingi til að blekkja yfir­völd, sakar ráð­herra Fram­sókn­ar­floks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins um póli­tísk inn­grip. „Við vorum hafðir að leiksoppum í póli­tísku leik­riti,“ segir Ólafur meðal ann­ars.

Myndband

Mest lesið

3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár