Notar CrossFit til að minnast kvenhermanna

Sænska lista­konan Victoria Cleverby opnar sýn­ing­una Heroine WOD í Norræna hús­inu um helg­ina. Í verk­inu notar hún CrossFit til að gera áhorf­and­ann með­vit­aðan um karllægni sam­fé­lags­ins.

Notar CrossFit til að minnast kvenhermanna
Victoria Claverby notar CrossFit til að kanna hvernig sam­fé­lagið minn­ist fall­ina kven­her­manna. Mynd: Úr einkasafni

Sýningin Heroine WOD verður opnuð í Norræna hús­inu laug­ar­dag­inn 11. febr­úar næst­kom­andi. Heroine WOD, sem er til­bún­ingur sænsku lista­kon­unnar Victoriu Cleverby, er kven­kyns útgáfa af CrossFit-æfingum sem kall­ast Hero WOD. Æfing­arnar, sem eru und­ir­staða í CrossFit, eru nefndar eftir körlum sem falla í stríði. Engar æfingar eru hins vegar gerðar til að minn­ast þeirra kvenna sem misst hafa lífið í stríði. „Hvernig tölum við um konur í hernum og hvernig heiðrum við þær sem falla í stríði?“ eru spurn­ingar sem lista­konan spyr sig í verk­inu, en mark­mið sýn­ing­ar­innar er meðal ann­ars að gera áhorf­and­ann með­vit­aðan um karllægni sam­fé­lags­ins. 

Heroine WOD
Heroine WOD Verkið heiðrar minn­ingu fall­inna kven­her­manna.

Victoria segir skemmti­legt að setja sýn­ing­una upp á Íslandi, sér­stak­lega í ljósi þess að Íslend­ingar eigi eitt fremsta CrossFit íþrótta­fólk í heimi og frá­bært CrossFit sam­fé­lag. „Í Norræna hús­inu mun ég sýna fimm æfingar sem til­eink­aðar eru kven­kyns …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár