Myndband sýnir ferðir Birnu nóttina sem hún hvarf

Lög­reglan hefur birt mynd­bandi af ferðum Birnu Brjáns­dóttur á Laug­ar­veg­inum. Lög­reglan leitar í rauðum smá­bíl í Breið­holt­inu.

Myndband sýnir ferðir Birnu nóttina sem hún hvarf

Með­fylgj­andi mynd­band, sem lög­reglan hefur sent frá sér, sýnir Birnu Brjáns­dóttur ganga um Lauga­veg­inn áður en hún hvarf. Á mynd­band­inu virð­ist hún ganga fremur reikul í spori.

Birna Brjáns­dóttirFor­eldrar hennar segja afar óeðli­legt og ólíkt henni að skila sér ekki heim.

Grun­sam­legt hvarf Birnu er rann­sakað út frá því að hún hafi horfið í Reykja­vík eða Hafn­ar­firði, allt eftir því hvort hún hafi verið aðskilin frá síma sínum eða ekki. Hún sást á örygg­is­mynda­vélum á Lauga­vegi, en virð­ist ekki hafa farið lengra en Laugaveg 31. Leitað er að öku­manni á Rauðum Kia Rio sem ók á Lauga­veg­inum sömu mín­útu, eða klukkan 05:25.

Sími hennar greind­ist á far­síma­sendum í eða við Hafn­ar­fjörð um nótt­ina. „Síminn gæti hafa farið áleiðis upp í Heiðmörk,“ sagði for­svars­maður slysa­varn­ar­fé­lags­ins Lands­bjargar á fund­inum. Ein sviðs­myndin er að sími Birnu hafi ferð­ast svo­kall­aða flótta­manna­leið frá Reykja­nes­braut að Víf­ils­stöðum og inn í Hafn­ar­fjörð. 

Lög­reglan sást fyrir skemmstu leita í rauðum smá­bíl í Bakka­hverf­inu í Breið­holti. Þrjár lög­reglu­bif­reiðar komu aðvíf­andi, að sögn vitnis. Hér er mynd­band af atvik­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvarf Birnu Brjánsdóttur

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sakbornings
Fréttir

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sak­born­ings

Unn­steinn Örn Elvars­son, lög­fræð­ingur Nikolaj Olsen, segir að skjól­stæð­ingur sinn hafi verið him­in­lif­andi þegar hann fékk þær fréttir að hann yrði lát­inn laus úr gæslu­varð­haldi en ein­angr­unin hefur reynt veru­lega á hann. Ekki verður farið fram á far­bann yfir honum en hann hefur verið stað­fastur í frá­sögn sinni, lýst yfir sak­leysi og reynt að upp­lýsa málið eftir bestu getu.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár