Davíð spáð sigri í Morgunblaðinu og varað við innihaldsleysi annarra

Morg­un­blaðið birtir leið­ara, stak­steina og skop­mynd til stuðn­ings Davíð Oddssyni, rit­stjóra blaðs­ins, sem verður á kjör­seðl­inum í for­seta­kosn­ing­unum á morgun. Davíð er spáð sigri í skop­mynd, Guðni Th. Jóhann­es­son enn og aftur gagn­rýndur fyrir afstöðu sína í Icesave-mál­inu í stak­steinum og leið­ara­höf­undur segir Davíð eina fram­bjóð­and­ann sem ekki hafi notað „froðu almanna­tengl­anna“.

Davíð spáð sigri í Morgunblaðinu og varað við innihaldsleysi annarra

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, er studdur í skop­mynd, leið­ara og stak­steinum blaðs­ins í dag vegna for­seta­kosn­ing­anna sem fara fram á morgun, og ítrekuð er gagn­rýni á vin­sælasta mót­fram­bjóð­anda hans, Guðna Th. Jóhann­es­son.

Leið­ara­höf­undur Morg­un­blaðs­ins segir það áhyggju­efni ef inni­halds­laus skila­boð almanna­tengla séu farin að vega þungt í kosn­ingum og jafn­vel skyggja á það sem fram­bjóð­endur standa fyrir í raun. Höfundur vitnar í grein Heiðrúnar Lindar Mart­eins­dóttur hér­aðs­dóms­lög­manns í Við­skipta­blað­inu en hún segir að svo virð­ist sem flestir for­seta­fram­bjóð­endur hafi látið almanna­tengla ráða boð­skap sínum. „Tveir fram­bjóð­endur skera sig að nokkru leyti frá fyrr­greindum hópi; ann­ars vegar Sturla Jónsson og hins vegar Davíð Oddsson,“ skrifar hún, en bætir við að Sturla telji meðal ann­ars að for­seti eigi að skipa ráð­herra og leggja fram frum­vörp til laga og því megi ráð­gera að hæfi­lega skyn­sam­legt fólk kjósi ekki Sturlu. 

„Síð­ar­greindi fram­bjóð­and­inn, Davíð Oddsson, býr vel að því að flestir þekkja hans sýn á stjórn­skipan lands­ins og hvernig auka megi far­sæld þeirra sem hér búa. Hann hefur verið stað­fastur í þess­ari sýn um ára­bil og kjós­endur mega vita að hverju þeir ganga verði hann for­seti. Davíð hefur því bless­un­ar­lega ekki notað froðu almanna­tengl­anna. Í ljósi valds for­seta er það áhyggju­efni að stór hluti kjós­enda virð­ist, sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum, gleypa alsælu­froð­una. Sig­ur­veg­arar kosn­ing­anna verða því hugs­an­lega almanna­tenglar.“

Leið­ara­höf­undi Morg­un­blaðs­ins, fjöl­miðl­inum sem Davíð Oddsson rit­stýrir, segir þetta umhugs­un­ar­verð sjón­ar­mið. „Í kosn­ingum þykir inni­haldið yfir­leitt skipta máli og í þeim ríkjum sem við berum okkur saman við skiptir það veru­legu máli í kosn­ingum um for­seta. Annað sem jafnan vegur þungt er reynsla fram­bjóð­enda, hvað þeir hafa þurft að takast á við í störfum sínum í gegnum tíð­ina og hvort þeir hafa sýnt að þeir hafi burði til að takast á við mikla ábyrgð,“ segir í leið­ara Morg­un­blaðs­ins.   

Skopmynd sýnir Davíð sigra 

Nafn­lausi slúð­ur­dálk­ur­inn Stak­steinar ber í dag fyr­ir­sögn­ina „Afvega­leiddi for­set­inn í Icesave?“ og fjallar um skrif Guðna Th. Jóhann­es­sonar, sagn­fræð­ings og for­seta­fram­bjóð­anda, um Ólaf Ragnar Grímsson og Icesave-málið. Þar á hann meðal ann­ars að hafa haldið því fram að mál­flutn­ingur Ólafs vegna Icesave hafi á stundum verið „afvega­leið­andi“. „Hvers vegna hefur Guðni lagt sig fram, bæði gagn­vart íslenskum og erlendum les­endum, að gera hlut for­seta Íslands í Icesave-mál­inu sem minnstan? Ólafur Ragnar barð­ist fyrir hags­munum þjóð­ar­inar, ólíkt Guðna sem lagð­ist á árar með vinstri stjórn­inni. Er það slæm sam­viska sem veldur því að sagn­fræð­ing­ur­inn hefur eft­irá reynt að draga úr því sem vel var gert í Icesave-bar­átt­unni? Hann hefur í það minnsta ekki enn getað útskýrt hvers vegna hann hefur gengið fram með þeim hætti sem raun ber vitni í Icesave-mál­inu og eft­ir­leik þess,“ segir í Stak­steinum dags­ins. 

„Ólafur Ragnar barð­ist fyrir hags­munum þjóð­ar­inar, ólíkt Guðna“ 

Skopmynd Morg­un­blaðs­ins í dag sýnir íþrótta­f­rétta­mann­inn Guðmund Bene­dikts­son lýsa loka­sprett­inum í kosn­inga­bar­átt­unni og ber Davíð Oddsson þar sigur úr býtum á loka­metr­unum. Davíð er með mynd­inni líkt við íslenska karla­lands­liðið í knatt­spyrnu sem náði eft­ir­minni­lega að tryggja sér sigur á lokamín­útu leiks­ins á móti Aust­ur­ríki á mið­viku­dag. 

Nafnlaus skrif Morgunblaðsins bergmála áherslur Davíðs

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Morg­un­blaðið rifjar upp gömul ummæli Guðna Th. í nafn­lausum dálka- og leið­ara­skrifum. Í byrjun júní var Morg­un­blað­inu frídreift á heim­ili lands­manna og ítrekað greint frá því að Guðni hafi notað orða­lagið „fávís lýð­ur­inn“ í fyr­ir­lestri um Þorska­stríðin árið 2013 í Háskól­anum á Bifröst. Skrifin ríma vel við áherslur rit­stjór­ans í kosn­inga­bar­átt­unni en hann hefur ítrekað notað þessi tvö atriði, ummælin um „fávísa lýð­inn“ og afstöðu Guðna til Icesave máls­ins, til að koma á höggi á Guðna. Í kapp­ræðum á Stöð 2 í gær sagði Davíð meðal ann­ars það vera slæmt að ekki mætti ræða að einn fram­bjóð­and­inn, og átti þar við Guðna Th, hefði hvatt þjóð­ina til að sam­þykkja Svavars-samn­ing­inn svo­kall­aða og að sami fram­bjóð­andi, Guðni Th. hefði talað um kjós­endur sem fávísan lýð. „Ef ég hefði sagt það þá hefðu báðar frétta­stöðv­arnar mætt heim til mín og spurt hvenær ég myndi hætta í fram­boði,“ sagði Davíð meðal ann­ars. 

Ritstjórinn í sumarleyfi

Davíð Oddsson er í sum­ar­leyfi frá starfi sínu sem rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins í bar­áttu sinni fyrir for­seta­kosn­ing­arnar en hyggst snúa strax aftur, verði hann ekki kjör­inn for­seti á morgun.

Náin tengsl eru milli fram­boðs Davíðs og útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins. Í kosn­ingateymi eru blaða­maður Morg­un­blaðs­ins, Laufey Rún Ket­ils­dóttir, og stjórn­ar­maður í útgáfu­fé­lag­inu Árvakri, Frið­björn Orri Ket­ils­son. Laufey safn­aði meðal ann­ars und­ir­skriftum fyrir fram­boð Davíðs á rit­stjórn­ar­skrif­stofum blaðs­ins.

Aðrir áhrifa­menn tengj­ast fram­boði Davíðs. Ari Edwald, fyrr­ver­andi for­stjóri 365 miðla, og athafna- og sjálf­stæð­is­mað­ur­inn Eyþór Arnalds, sitja báðir í stjórn félags sem heldur utan um fram­boð Davíðs. Þá er Erla Gunn­laugs­dóttir, fjöl­miðla­full­trúi fram­boðs­ins, dóttir full­trúa eins helsta eig­anda Árvakurs, Gunn­laugs Sævars Gunn­laugs­sonar, stjórn­ar­for­manns Ísfélags Vest­manna­eyja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár