Minntist á skýrsluna í ræðustól en „leið eins og þingið hefði bara verið farið heim“

Þingmenn Pírata gefa lítið fyrir skýr­ingar Bjarna Bene­dikts­sonar. „Ráðherra getur ekki hafa verið það óljóst, aðspurður af frétta­stofu Rúv, hvort þingi hafi verið slitið eða ekki þegar skýrslan var til­búin.“

Minntist á skýrsluna í ræðustól en „leið eins og þingið hefði bara verið farið heim“

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur gefið þær skýr­ingar á ósann­indum sem fram komu í við­tali við hann á laug­ar­dag að honum hafi liðið eins og hann hefði ekki fengið kynn­ingu á skýrslu um umfang aflandseigna Íslend­inga fyrr en eftir að þing var farið heim. Sjálfur tal­aði hann þó um skýrsl­una í þing­ræðu eftir að honum hafði verið kynnt efni hennar.

Bjarni fór með rangt mál þegar hann sagð­ist hafa fengið umrædda skýrslu til sín í ráðu­neytið eftir þing­slit. Hið rétta er að skýrslan var afhent fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu þann 13. sept­em­ber þegar um mán­uður var eftir af þing­störfum. „Það sem ég átti við, og það sem var í huga mér, var það, þegar þessi skýrsla er kynnt fyrir mér sem er þarna í fyrstu vik­unni í októ­ber þá standa yfir samn­ingar um þing­lok. […] Í huga mínum í gær þá hugs­aði ég með mér, mér leið eins og þingið hefði bara verið farið heim, en þetta var kannski ekki nákvæm tíma­lína hjá mér og ég biðst nú vel­virð­ingar á því,“ sagði hann í við­tali við RÚV á sunnu­dags­kvöld þegar hann baðst vel­virð­ingar á „óná­kvæmni“ dag­inn áður.

Þann 10. októ­ber tal­aði hann hins vegar sjálfur um skýrsl­una í ræðu á Alþingi og sagð­ist brátt mundu skila henni. „Ég mun á næstu dögum sömu­leiðis skila skýrslu um þau mál sem ég boð­aði í vor varð­andi umfang þeirra mála,“ sagði Bjarni orð­rétt í svari við óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn um aðgerðir gegn skattaund­anskotum. Fyr­ir­spyrj­and­inn var Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar sem nú er að mynda rík­is­stjórn með Bjarna.

Píratar rifja upp þessi ummæli Bjarna í harð­orðri yfir­lýs­ingu sem þeir sendu frá sér í gær­kvöldi. Bent er á að skýrsl­unni var skilað til ráðu­neytis Bjarna þann 13. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og ráð­herra sér­stak­lega kynnt efni hennar þann 5. októ­ber, rúmri viku áður en þingi var slitið.

„Ráðherra getur vart borið fyrir sig minnis­glöpum í þessu sam­hengi, þar sem hann svar­aði sjálfur óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn um málið á Alþingi þann 10. októ­ber. Þar full­yrti hann að umrædd skýrsla yrði birt á næstu dögum, vit­andi vel að skýrslan væri til­búin til birt­ingar. Þetta þýðir að ráð­herra getur ekki hafa verið það óljóst, aðspurður af frétta­stofu Rúv, hvort þingi hafi verið slitið eða ekki þegar skýrslan var til­búin,“ segir í yfir­lýs­ingu Pírata. 

Ný rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­sonar verður kynnt í dag. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár