Meintur meðlimur Devil´s Choice stöðvaður í Leifsstöð

Fimm­tugur Norð­maður með hreina saka­skrá fær ekki aðgang að Íslandi. Maðurinn kom til lands­ins ómerktur mót­or­hjóla­sam­tök­unum.

Meintur meðlimur Devil´s Choice stöðvaður í Leifsstöð

Fimm­tugur norskur ferða­maður var stöðv­aður af lög­reglu við koma til Íslands í morgun. Ástæðan sem hann fékk frá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum var að hann sé með­limur í mót­or­hjóla­sam­tök­unum Devil´s Choice. Að sögn íslensks vinar hans sem kom með honum til lands­ins var gerð leit á bæði lík­ama hans og far­angri. Að sögn Guð­mundar St. Ragn­ars­sonar, lög­manns Norð­manns­ins, hefur karl­mað­ur­inn hreina saka­skrá í Noregi, en hann starfar þar við olíu­vinnslu í Norð­ur­sjó.

„Hann var færður til við­tals og ég er í þessum töl­uðu orðum að keyra til Kefla­víkur til að vera við­staddur skýrslu­töku. Ég get voða lítið tjáð mig um málið fyrir en eftir hana,“ segir Guð­mundur. Hann seg­ist ekki geta stað­fest að mað­ur­inn sé með­limur í Devil´s Choice.

Íslenskur vinur Norð­manns­ins, sem kom með honum til lands­ins í morgun, segir í sam­tali við Stundina að félagi sinn hafi ekki verið merktur mót­or­hjóla­sam­tök­unum og hafi aðeins komið hingað til að skoða íslenska nátt­úru. Hann segir enn fremur að Devil´s Choice sé ekki til á Íslandi í dag og því ómögu­legt að félagi sinn hafi komið til lands­ins til að stunda ólög­lega starf­semi. „Hann er með flug aftur út næsta föstu­dag og ég er hræddur um að hann verði í fanga­klefa fram að því,“ segir vinur karl­manns­ins. Þar sem karl­mað­ur­inn hefur ekki verið form­lega hand­tek­inn heldur aðeins verið mein­aður aðgangur til Íslands þá er óljóst hve lengi honum verður haldið í fanga­klefa, en dæmi eru um í sam­bæri­legum málum að slík vist geti varið í fleiri sól­ar­hringa.

Líkt og fyrr segir hafa mót­or­hjóla­sam­tökin Devil´s Choice verið lögð niður hér á landi. Samtökin hétu áður Hog Riders og voru um tíma svokölluð stuðn­ings­sam­tök Vít­isengla. Árið 2013 var 6 með­limum í sam­tök­unum vísað frá landi við komu til Íslands og var sú ákvörðun byggð á hættu­mati grein­ing­ar­deildar Rík­is­lög­reglu­stjóra sem hefur skil­greint sam­tökin sem glæpa­sam­tök.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár