Meintir hópnauðgarar sögðust saklausir í héraðsdómi

Fimm menn eru sak­aðir um að hafa nauðgað stúlku í Breið­holti í fyrra.

Meintir hópnauðgarar sögðust saklausir í héraðsdómi

Hópnauðg­un­ar­mál var þing­fest í hér­aðs­dómi Reykja­víkur rétt í þessu, en fimm karl­menn á aldr­inum átján til tutt­ugu og eins ára hafa verið ákærðir vegna atviks í Breið­holti sem átti sér stað 4. maí á síð­asta ári. Þeir eru sak­aðir um að hafa nauðgað stúlku sem var sextán ára. Stúlkan kærði þá fyrir nauðgun stuttu eftir atvikið. Menn­irnir huldu and­lit sín þegar þeir gengu út úr dóm­sal, en rétt­ar­höldin eru lokuð. Allir sak­born­ing­arnir fimm neit­uðu sök þegar málið var þing­fest og höfn­uðu bóta­kröfu. 

 

Í ákæru kemur fram að menn­irnir héldu stúlkunni nauð­ugri í svefn­her­bergi íbúðar í Breið­holti og beittu hana ofbeldi. Þeir eru sagðir hafa not­fært sér yfir­burða­stöðu og aðstöðumun gagn­vart stúlkunni. Einn mann­anna er ákærður fyrir að hafa tekið nauðg­un­ina upp á mynd­band. Sá maður kom mynd­band­inu í dreif­ingu og sýndi sam­nem­anda stúlkunnar mynd­bandið í skóla helg­ina eftir atvikið. Mynd­bandið er hluti máls­gagna. Annar ákærða er sak­aður um að hafa fært stúlk­una í annað her­bergi og þar sem hann nauðg­aði henni. Móðir stúlkunnar krefst ríf­lega 10 millj­óna króna í skaða- og miska­bætur af mönn­unum. Menn­irnir hafa allir neitað sök.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár