Vinnuslys, mengun, undirboð og bágar vinnuaðstæður hjá United Silicon

Starfs­menn United Silicon kvarta undan bágum vinnu­að­stæðum en einn þeirra fékk raf­stuð í gær og þurfti að leita aðhlynn­ingar á sjúkra­hús. Stundin hefur undir höndum mynd­skeið úr verk­smiðj­unni sem sýnir mis­tök og mikla mengun.

Vinnuslys, mengun, undirboð og bágar vinnuaðstæður hjá United Silicon
United Silicon Mikil mengun berst frá verk­smiðj­unni en íbúar í Reykja­nesbæ hafa meðal ann­ars kvartað undan stækri bruna­lykt.

Starfs­maður í kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon fékk raf­stuð í gær og þurfti að leita aðhlynn­ingar á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja, en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá bæði Bruna­vörnum Suð­ur­nesja og lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum þá var atvikið ekki til­kynnt til þeirra. Samkvæmt svæð­is­skrif­stofu Vinnu­eft­ir­lits­ins í Reykja­nesbæ var vinnu­slysið heldur ekki til­kynnt til þeirra. Mögu­leiki sé þó að það hafi verið til­kynnt til starfs­manna Vinnu­eft­ir­lits­ins í Reykja­vík en beðið er eftir stað­fest­ingu þess efnis.

Óskað var eftir upp­lýs­ingum frá United Silicon í tengslum við vinnu­slysið og önnur vand­ræði sem upp hafa komið á und­an­förnum dögum en eng­inn svar­aði á skrif­stofu félags­ins. Haft var sam­band við almanna­tengil United Silicon, þann sama og skrif­aði síð­ustu yfir­lýs­ingu verk­smiðj­unnar, en sá benti á fram­kvæmda­stjóra hjá félag­inu sem ekki gat svarað vegna funda­halda.

Meiri mengun framundan

Vinnu­slysið er ekki það eina sem hefur komið upp á því spennir fór í verk­smiðj­unni í gær­morgun með þeim afleið­ingum að slökkva þurfti á ofni United Silicon. Ofninn og útblást­ur­inn frá honum hefur vakið miklar deilur í Reykja­nesbæ. Stundin hefur greint ítar­lega frá vand­ræðum United Silicon und­an­farnar vikur og mán­uði en tals­menn verk­smiðj­unnar segja að aðeins sé um að ræða tíma­bundið ástand; um leið og ofn­inn nær kjör­hita hætti verk­smiðjan að menga yfir íbúa­byggð í Reykja­nesbæ.

Þá hafa tals­menn þess einnig bent á loft­gæða­mæla en líkt og Stundin hefur greint frá voru stað­setn­ingar þeirra ákveðnar út frá loft­dreifi­lík­ani sem eng­inn vill kann­ast við að hafa búið til. Íbúar í grennd við verk­smiðj­una fóru aftur að finna fyrir bruna­lykt í gær­kvöldi og í morgun vegna norð­an­áttar sem blæs meng­un­inni yfir byggð­ina og hefur verið kvartað undan henni í hópi íbúa á sam­fé­lags­miðlum. Und­an­farið hefur vind­átt verið að sunnan, sem dreifir meng­un­inni yfir Faxa­fló­ann fremur en yfir byggð.

Keimlík mál í Helguvík og Valby

Svo má ekki gleyma pólska verk­taka­fyr­ir­tæk­inu Metal Mont sem gerði til­boð í afmark­aða verk­þætti í United Silicon en Halldór Grönvald, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri ASÍ, sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið að miðað við samn­ing pólska fyr­ir­tæk­is­ins við United Silicon og önnur fyr­ir­liggj­andi gögn stæð­ust kjör verka­mann­anna ekki lág­marks­kröfur kjara­samn­inga og laga sem gilda á Íslandi. Enn fremur væri samn­ing­ur­inn til þess gerður að kom­ast hjá því að greiða opin­ber gjöld á Íslandi.

Svo virð­ist sem að málið sé keim­líkt því sem Stundin greindi frá þann 20. júlí. Þar kom fram að aðal­eig­andi United Silicon, Magnús Garð­ars­son, hafi stundað vafasöm við­skipti í Danmörku sem kost­uðu hann starf hans hjá dönsku verk­fræði­stof­unni COWI. Þá var fyr­ir­tæki í hans eigu einnig sektað um tæpar sjö millj­ónir króna vegna brota á rétt­indum pól­skra verka­manna sem unnu við bygg­ingu og fram­kvæmdir við íbúðir í Valby í Danmörku.

Lögreglan og Magnús
Lög­reglan og Magnús Stétt­ar­fé­lög í Danmörku sögðu Magnús brjóta kjara­samn­inga þar í landi vegna pól­skrar starfs­manna­leigu. Sama virð­ist uppi á ten­ingnum í Helguvík.

Hundeltur af dönskum stéttarfélögum

Magnús var eltur af dönskum stétt­ar­fé­lögum en lög­reglan var kölluð á vinnu­svæðið vegna þess­ara brota auk þess sem danska stétt­ar­fé­lags­sam­bandið skipu­lagði mót­mæli fyrir utan heim­ili við­skipta­fé­laga Magnúsar. Var með­ferð Magnúsar sögð jaðra við man­sal. Upp komst, sam­hliða þessu máli, að Magnús hafði keypt efni fyrir fram­kvæmd­irnar í nafni COWI, þar sem hann sinnti aðeins hluta­starfi.

COWI var skrifað fyrir loft­dreifi­lík­ani United Silicon. Verk­fræði­stofan krafð­ist þess að nafn fyr­ir­tæk­is­ins yrði afmáð úr mats­skýrslu United Silicon, sem skilað var inn til Umhverf­is­stofn­unar, því þar kann­að­ist engin við að hafa búið til loft­dreifi­líkanið sem á skilj­an­legra máli er kallað meng­un­ar­spá.

Vandræði ofan á vandræði

Það er því ekki hægt að segja að vand­ræði kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon séu að baki. Að minnsta kosti ekki ef marka má fréttir sem ber­ast frá Helguvík. Það er þvert á yfir­lýs­ingar fyr­ir­tæk­is­ins sem hefur meðal ann­ars sagt að einn af fjórum ofnum þess verði kom­inn í „fullt álag á allra næstu dögum“ en níu dagar eru frá því sú yfir­lýs­ing var send á fjöl­miðla. Þá taldi United Silicon einnig mik­il­vægt að það kæmi fram að starfs­menn þeirra hafi ekki „kvartað undan óþæg­indum vegna reyks eða lyktar.“

Ekki má svo gleyma þeim hálauna­störfum sem áttu að verða til við rekstur kís­il­málm­verk­smiðj­unnar þegar áform um starf­rækslu hennar voru kynnt íbúum Reykja­nes­bæjar.

Með rykgrímur við hættuleg störf

Starfs­maður United Silicon sendi blaða­manni Stund­ar­innar með­fylgj­andi mynd­skeið á dög­unum en þar sést nokkurn veg­inn verk­fer­ill­inn sem nú er við­hafður í Helguvík. Svo virð­ist sem að kísil sé hellt á gólf verk­smiðj­unnar og hann síðan brot­inn upp og fluttur inn í gáma. Eitthvað hefur farið úrskeiðis í þessu ferli því starfs­mað­ur­inn sagði einn af bræðslu­pottum verk­smiðj­unnar hafa bráðnað við gólf hennar.

„Hann er bara þarna á gólf­inu, bráðn­aður fastur og kís­ill allt í kring. Það er eins og menn hafi ekki vitað almenni­lega hvað þeir voru að gera þegar þetta fór af stað. Þá á ég erfitt með að trúa því að þetta sé eðli­legur verk­fer­ill. Að hella kísil á gólfið. Það er kannski eði­legt en maður fær það ekki á til­finn­ing­una,“ sagði starfs­mað­ur­inn sem í ljósi stöðu sinnar vildi ekki láta nafns síns getið.

Hvað loft­gæði varðar sagði starfs­mað­ur­inn að mengun væri svo mikil að svo gott sem ólíft væri inni í verk­smiðju­hús­inu. Þar gangi menn um með ryk­grímur sem þó komi að tak­mörk­uðu gagni. Menn séu því að ræskja sig og „hrækja hori“, eins og hann orð­aði það, í kaffi- og mat­máls­tímum. Lítil sem engin loft­ræst­ing sé á vinnu­svæð­inu sjálfu, hún sé aðal­lega tengd við ofn­inn sjálfan.

„Þetta virð­ist stefna í martröð sem engan enda tekur.“

Íbúafundur á næstu dögum

Íbúar í Reykja­nesbæ hafa kraf­ist þess að bæj­ar­yf­ir­völd blási til íbúa­fundar þar sem staðan í Helguvík verði rædd. Bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar, Kjartan Már Kjart­ans­son, til­kynnti á sam­fé­lags­miðlum í morgun að bæj­ar­ráð myndi á morgun, 8. des­em­ber, ganga að óskum íbúa og ákveða hvenær slíkur íbúa­fundur yrði hald­inn. Fund­ur­inn verður því að veru­leika en sú til­laga sem liggur fyrir miðar að því að halda hann í Hljóma­höll­inni þann 14. des­em­ber klukkan 20:00.

Fréttin verður upp­færð þegar upp­lýs­ingar ber­ast frá United Silicon og Vinnu­eft­ir­liti Ríkisins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Áhrif kísilvers United Silicon

Arion um sjálfbærnistefnu sína og kísilverið: „Bankinn tekur þá ábyrgð mjög alvarlega“
FréttirÁhrif kísilvers United Silicon

Arion um sjálf­bærni­stefnu sína og kís­il­verið: „Bankinn tekur þá ábyrgð mjög alvar­lega“

Arion banki er með­vit­aður um þá ábyrgð sem hvílir á bank­anum varð­andi mögu­lega end­ur­opnun kís­il­vers­ins í Helguvík. Kís­il­ver­inu var lokað vegna meng­unar árið 2017. Stefna bank­ans í umhverf­is­málum hefur tekið breyt­ingum á liðnum árum og svarar bank­inn meðal ann­ars spurn­ingum um hvernig þessa stefna rímar við end­ur­opnun meng­andi kís­il­vers.
Guðbrandur þurfti púst til að hjálpa sér við að anda út af kísilverksmiðjunni
ViðskiptiÁhrif kísilvers United Silicon

Guð­brandur þurfti púst til að hjálpa sér við að anda út af kís­il­verk­smiðj­unni

Arion banki hyggst opna aftur kís­il­verk­smiðj­una í Helguvík sem hefur verið lokuð í tæpt ár. Allir bæj­ar­full­trúar í Reykja­nesbæ hafa lýst sig and­víga opn­un­inni og 350 athuga­semdir bár­ust frá íbúum í bænum. Guð­brandur Ein­ars­son', bæj­ar­full­trúi og þing­maður VIð­reisnar, lýsir áhrifum verk­smiðj­unnar á heilsu­far sitt og útskýrir hvers vegna má ekki opna hana aftur.
Stjórnmálamenn töluðu upp United Silicon og fögnuðu ákaft: „Við erum búin að bíða lengi“
FréttirÁhrif kísilvers United Silicon

Stjórn­mála­menn töl­uðu upp United Silicon og fögn­uðu ákaft: „Við erum búin að bíða lengi“

„Þetta er mjög stór stund,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þá for­sæt­is­ráð­herra, þegar fyrsta skóflustungan var tekin að verk­smiðju United Silicon, sem fór í gjald­þrot í dag eftir að hafa marg­brotið starfs­leyfi og mein­tan fjár­drátt for­stjór­ans. Bæj­ar­stjór­inn í Reykja­nesbæ gagn­rýndi úrtöluraddir. „Við erum búin að bíða lengi,“ sagði iðn­að­ar­ráð­herra.
Dularfullur barón keypti í kísilveri og seldi virkjanaréttindi
Fréttir

Dul­ar­fullur barón keypti í kís­il­veri og seldi virkj­ana­rétt­indi

Ítalskur barón, Felix Von Longo-Lieb­en­stein, hefur verið virkur í jarða­kaupum á Íslandi frá síð­ustu alda­mótum en hefur náð að halda sér utan kast­ljóss fjöl­miðla. Hann var einn af hlut­höf­unum í kís­il­fyr­ir­tæk­inu United Silicon og seldi dótt­ur­fé­lagi HS Orku vatns­rétt­indi út af virkjun á Ströndum. Illa gengur að fá upp­lýs­ingar um bar­ón­inn.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár