„Eins og sannkölluð jólasaga, sem endar vel“

Frest­ur­inn til að senda tvo kristna Írani aftur til Noregs rann út og ber Útlend­inga­stofnun að taka mál þeirra til efn­is­legrar með­ferðar.

„Eins og sannkölluð jólasaga, sem endar vel“
Mehdi Ped­ar­sani Mynd: No Borders Iceland

Í morgun kom í ljós að frest­ur­inn til að senda tvo íranska hæl­is­leit­endur, Mohammad Reza Moghadam og Mehdi Ped­ar­sani, er runn­inn út og verða mál þeirra því tekin til efn­is­með­ferðar hér á landi. Til stóð að senda þá báða aftur til Noregs á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar en að sögn Katrínar Odds­dóttur, lög­manns þeirra, voru miklar líkur á að þeir yrðu þaðan sendir aftur til Írans. Þar áttu þeir yfir höfði sér alvar­legar ofsóknir og jafn­vel fang­els­is­dóm vegna trúar sinnar. „Þetta var mjög alvar­leg staða en sem betur fer sýn­ist mér hún hafa leysts í morgun,“ segir Katrín í sam­tali við Stundina. Hún segir stöð­una hafa verið sér­stak­lega alvar­lega í ljósi þess að Noregur er að senda fólk til heima­lands síns sem Íslend­ingar myndu aldrei senda til baka, til dæmis kristna Írana. „Þeir eru auð­vitað him­in­lif­andi. Þetta er eins og sann­kölluð jóla­saga, sem endar vel,“ segir Katrín. 

Synjað um meðferð á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar

Mál Mehdi og Reza hafa áður verið rekin í fjöl­miðlum. Reza er 27 ára Kúrdi frá Íran sem hefur verið á flótta frá heima­land­inu í átta ár. Það sama má 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár