Lífshættan ýtti henni af stað

Þegar Sif Trausta­dóttir Rossi horfði á vöru­flutn­inga­bíl­inn stefna beint á sig á ísi lagðri Öxna­dals­heið­inni varð hún fyrir reynslu sem fékk hana til að brjót­ast út úr hvers­dags­líf­inu og láta draum sinn ræt­ast. Hún hefur nú keypt sér hús­bíl og ferð­ast frjáls um Evrópu.

Lífshættan ýtti henni af stað

Það voru hlutir sem urðu til þess að ég komst af stað,“ segir dýra­lækn­ir­inn Sif Trausta­dóttir Rossi, þar sem hún dvelur í hús­bíl í Búdapest, höf­uð­borg Ung­verja­lands, farin frá Íslandi í bili.

Sif fór fyrir nokkrum vikum til Þýska­lands og keypti sér hús­bíl. Hún ætlar að búa í bílnum í minnst sjö mán­uði og ferð­ast um Evrópu. Það hafði lengi verið draumur hennar að skilja við hvers­dags­lífið og leggja upp í lang­ferð, svo lengi að útlit var fyrir að hann rætt­ist ekki. Síðan kom atburð­ur­inn sem kastaði henni út úr þæg­ind­ara­mm­anum.

„Ég var að fara í skíða­ferða­lag norður í land. Við vorum í bíl. Ég var far­þegi í honum. Það var hálka á veg­inum. Bíllinn byrj­aði skyndi­lega að rása. Svo sá ég að það var gáma­flutn­inga­bíll að koma á fullri ferð á móti okkur. Ég hugs­aði: Nú mun ég bara deyja.“ 

„Ég hugs­aði: Nú mun ég bara deyja.“ 

Hugljómun um lífið

Það varð Sif lík­lega til lífs að bíll­inn rás­aði lengra og fór út af veg­inum undan gáma­flutn­inga­bílnum. „Við vorum svo heppin að það var snjó­skafl akkurat þar sem við fórum út af. Við vorum öll lif­andi og allir voru óbrotnir. En ég skall­aði upp undir loftið á bílnum þegar bíll­inn valt og ég fékk hnykk­skaða á háls­inn og bakið.“

Bílslysið reynd­ist á tví­þættan hátt vera orsaka­valdur þess að Sif býr nú í hús­bíl, óviss um hvað verður á vegi hennar næsta hálfa árið. 

„Í raun og veru má segja að þetta bílslys hafi haft áhrif á það að ég ákvað að láta af þessu verða. Eftir þetta slys hugs­aði ég mikið um það hvernig maður gengur í gegnum lífið, setur undir sig hornin og þjösnast áfram. Reynir að kom­ast í gegnum þetta, án þess að gera eitt­hvað sem skiptir raun­veru­lega máli. Þegar þetta gerð­ist fékk ég bara þessa hug­ljómun, að maður á ekki að bíða eftir því að kom­ast á eft­ir­laun,“ útskýrir Sif.

Önnur hlið­ar­á­hrif, sem ýttu henni út í ferð­ina, voru að hún fékk trygg­inga­bætur vegna slyss­ins. „Það hefur alltaf heillað mig að ferð­ast. Mig lang­aði til að taka mér lengra frí. Það er nokkuð sem ég hef hugsað um í mörg ár.“ 

Skömmu eftir bílslysið varð atburður sem und­ir­strik­aði að hún yrði að fara. „Eitt af því sem hefur rekið mig af stað er að það eru miklir arf­gengir hjarta­sjúk­dómar í móð­ur­fjöl­skyld­unni minni, sér­stak­lega kransæða­sjúk­dómar. Þremur mán­uðum eftir að ég lenti í bílslys­inu þurfti mamma mín að fara í fjór­falda hjá­veitu­að­gerð og var heppin að vera ekki búin að fá hjarta­á­fall þegar þetta upp­götv­að­ist, þrátt fyrir að hafa aldrei 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár