Leynilegir aðilar í herferð gegn Pírötum

Aug­lýs­inga­her­ferð gegn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum er haldið úti af aðilum sem gefa ekki upp nafn sitt eða fjár­mögnun her­ferð­ar­innar.

Meðlimir Pírata
Meðlimir Pírata Í aug­lýs­ingum nafn­lausra aðila er ýjað að því að Píratar stefni á nýtt hrun og 900 millj­arða skatta­hækk­anir, auk þess sem birtar eru myndir af hryðju­verka­árásum í Evrópu ásamt efa­semdum um getu Pírata í örygg­is­málum. Myndin er tekin vorið 2015. Mynd: Kristinn Magnússon

Und­an­farið hefur nafn­laus Facebook-síða birt áróð­urs­mynd­bönd gegn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum í frétta­streymi fjölda Íslend­inga.

Aðstand­endur síð­unnar borga fyrir birt­ingu mynd­band­anna, en alger leynd hvílir yfir þeim sem standa að síð­unni og þeim sem fjár­magna aug­lýs­ingar hennar.

Tilvísanir í hryðjuverk og hrun

Í mynd­bönd­unum er meðal ann­ars ýjað að því að Píratar „stefni á annað hrun“ og birtar myndir sem tengj­ast fjöldamorði í Noregi og hryðju­verka­árás í Frakk­landi. Í einu mynd­band­anna er greint frá því að Sam­fylk­ingin njóti þess að vera í hús­næði sem fjár­magnað var af Sov­ét­ríkj­unum og sagt að þögn Rík­is­út­varps­ins sé „ærandi“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár