Kveður móður sína, sem var myrt: „Hjartahlý, skörp og góð kona sem vildi öllum vel“

Kona sem var myrt af eig­in­manni sínum á Akranesi skilur eftir sig dóttur, móður og barna­barn.

Kveður móður sína, sem var myrt: „Hjartahlý, skörp og góð kona sem vildi öllum vel“

Dóttir Nadezdu Eddu Tarasovu, sem var myrt af eig­in­manni sínum á Akranesi 13. apríl, kveður hana í minn­ing­ar­grein í Morg­un­blað­inu í dag.

Nadezda var starfs­maður Grunda­skóla á Akranesi. „Mamma mín, Nadezda Edda Tarasova, var myrt þann 13. apríl 2016. Mamma var hjarta­hlý, skörp og góð kona sem vildi öllum vel,“ segir í grein dóttur hennar, Júlíu. „Við vorum afar nánar, hún var mér allt í senn mamma, systir og besta vin­kona. Andlát hennar er mér og fjöl­skyldu minni svo ákaf­lega þung­bært. Elsku mamma - við vitum að þú ert með okkur, við elskum þig og þú verður ævin­lega í hjörtum okkar.“

Minningargrein
Minn­ing­ar­grein Dóttir Nadezdu Eddu skrifar minn­ing­ar­grein um móður sína.

Nadezda skilur einnig eftir sig móður og barna­barn. Hún fædd­ist sjálf í Rúss­landi 9. ágúst 1961 og er dóttir hennar, Júlía, búsett þar. 

Hún verður jarð­sungin frá Akra­nes­kirkjun í dag klukkan 14.30.

Samfélagið harmi lostið

Sam­fé­lagið á Akranesi var harmi lostið þegar fréttir bár­ust af því að hjón hefðu fund­ist látin í fjöl­býl­is­húsi í bænum. Eig­in­maður Nadezda, Guð­mundur Valur Ósk­ars­son, hafði glímt við veik­indi. Lög­reglan telur að hann hafi skotið eig­in­konu sína til bana áður en hann svipti sig lífi. Þau höfðu verið gift í ára­tug.

Nadezda starf­aði sem skóla­liði í Grunda­skóla og var vel liðin. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár