Kosningastjóri Framsóknar tjáir sig um brjóstaherferð

Svanur fjar­lægði ummæli sín um borg­ar­stjóra. Eig­in­kona hans segir #freethenipple-her­ferð­ina „hámark plebb­ism­ans“

Kosningastjóri Framsóknar tjáir sig um brjóstaherferð

„Vitiði afhverju Dagur var svona ánægður með brjósta­dag­inn? Hann fékk loks­ins að sjá brjóstin á Hildi Lilli­endahl,“ skrif­aði Svanur Guð­munds­son, kosn­inga­stjóri Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, á Facebook-síðu sína í dag. Hann hefur nú falið ummælin, en skjá­skot af þeim hefur vakið tals­verða athygli á Twitter.

Svanur er eig­in­maður Guðfinnu Jóhönnu Guð­munds­dóttur, borg­ar­full­trúa Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina, en hún lét hafa eftir sér í gær að her­ferðin #FreetheNipple væri „hámark plebb­ism­ans“.

Svanur hefur lagt sitt­hvað til mál­anna. Meðal ann­ars deildi hann frétt um mennta­skóla­stúlkur sem gengu ber­brjósta niður Lauga­veg­inn og skrif­aði: „Ef þetta fer í erlenda fjöl­miðla þá þarf að end­ur­skoða spá um fjölda ferða­manna og áfalla­hjálp fyrir feður þessa lands.“ Þá spurði hann á Facebook í gær­kvöldi: „Er ein­hver hér, ein­hver karl­kyns, sem skilur betur konur eftir dag­inn í dag?“

Kosn­inga­stjór­inn er fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins Smáíbúða ehf. DV tók við­tal við hann í fyrra þar sem fram kom að hann von­að­ist til að Guðfinna myndi beita sér fyrir hags­munum fyr­ir­tækis síns sem hafði þá lýst yfir vilja til að reisa gáma­hús í höf­uð­borg­inni. Guðfinna og Svanur brugð­ust við með því að segja að rangt væri haft eftir þeim í frétt DV sem birti í kjöl­farið hljóð­upp­tökur af sím­töl­unum sem leiddu í ljós að svo var ekki. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár