Kjósendur Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks vilja ekki að flokkar gefi upp samstarfsmöguleika fyrir kosningar

Kjós­endur Sam­fylk­ingar, Pírata og Vinstri­hreyf­ing­ar­innar-græns fram­boðs eru mjög hlynntir þeirri hug­mynd að flokkar gefi upp fyrir kosn­ingar með hverjum þeir hafa mestan áhuga á að vinna, á meðan kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks eru mjög and­vígir þeirri hug­mynd.

Kjósendur Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks vilja ekki að flokkar gefi upp samstarfsmöguleika fyrir kosningar

Slétt 57 pró­sent Íslend­inga eru hlynnt því að flokkar gefi það upp fyrir kosn­ingar með hverjum þeir hafa mestan áhuga á að vinna með ef þeir kom­ast í rík­is­stjórn. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu um sam­starf­mögu­leika stjórn­mála­flokka. Kjós­endur Sam­fylk­ingar, Pírata og Vinstri­hreyf­ing­ar­innar-græns fram­boðs eru einna helst hlynntir þess­ari hug­mynd á meðan kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks eru einna helst and­vígir henni. „Þetta er afger­andi nið­ur­staða en kemur kannski ekki á óvart,“ segir meðal ann­ars í skýrslu Maskínu. 

Þannig segj­ast 89,7 pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ingar hlynnt því að flokkar gefi upp fyrir kosn­ingar með hverjum þeir hafa mestan áhuga á að vinna með ef þeir kom­ast í rík­is­stjórn, 82,6 pró­sent kjós­enda Pírata, 79 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna og 65,4 pró­sent kjós­enda Bjartrar fram­tíðar. Hins vegar vilja ein­ungis 24 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks að flokkar gefi um ákjós­an­lega sam­starfs­flokka fyrir kosn­ingar og aðeins 17,6 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins. Rúmlega helm­ingur kjós­enda Við­reisnar, eða 54,1 pró­sent, seg­ist hlynntur því að flokkar gefi það upp fyrir kosn­ingar með hverjum þeir vilja vinna. 

Kjós­endur í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og Suð­ur­kjör­dæmi eru síður hlynntir því að flokkar gefi upp sam­starfs­mögu­leika fyrir kosn­ingar en kjós­endur í öðrum kjör­dæmum.

Að jafn­aði fjölgar þeim með meiri menntun sem eru hlynntir því að flokkar gefi það upp fyrir kosn­ingar með hverjum þeir hafa mestan áhuga á að vinna með ef þeir kom­ast í rík­is­stjórn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár