Jólahefðir og meðlæti

Nanna Rögn­valdar kynnir frum­legt og hollt með­læti fyrir jólamat­inn, sem fer ekki langt frá hefð­inni: Rauð­káls­salat og soðið rauð­kál með trönu­berjum.

Jólahefðir og meðlæti
Rauð­káls­salat Hrásalat sem hentar vel til dæmis með svína­steik eða ham­borg­ar­hrygg, kalkúna, lamba­steik og fleiru. Mynd: Nanna Rögnvaldar

Jólafastan er hafin og margir farnir að huga að jólamatnum en hinir eru líka margir sem þurfa ekk­ert að gera það sér­stak­lega því að hann er fyr­ir­fram ákveð­inn og er sá sami ár eftir ár. Líklega er fólk aldrei eins fast­heldið á venjur og hefðir og einmitt um jólin og það kemur ekki síst fram í jólamatnum. Það verður að vera ham­borg­ar­hryggur (eða rjúpur eða pöru­steik eða eitt­hvað annað) því ann­ars koma ekki jól. Það verða að vera brún­aðar kart­öflur og Waldorfsalat eða epla­salat eða bleika sal­atið hennar Stínu frænku því ann­ars koma ekki jól. Það verður að vera grjóna­grautur í for­rétt eins og var alltaf hjá ömmu – þótt engum finn­ist reyndar neitt varið í hann – því ann­ars koma ekki jól. Hefð­irnar eru margar og mis­jafnar en víða mjög fastar í sessi.

Samt er það nú svo að flestir sem lent hafa í því að eitt­hvað hefur klikkað – raf­magnið fór eða það feng­ust engar rjúpur eða grjóna­graut­ur­inn brann við eða það gleymd­ist að kaupa eitt­hvert bráð­nauð­syn­legt hrá­efni í bleika sal­atið – við­ur­kenna eftir á að jú, jólin hafi nú komið samt sem áður. Stundum kemur líka í ljós, þegar fjöl­skyldan fer að ræða málin, að í raun­inni eru allir sáttir við að breyta út af ein­hverjum jóla­hefðum og hafa bara haldið að allir hinir vildu hafa það svona. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár