Jóhannes: Einungis „getgátur“ að Sigmundur njóti ekki stuðnings í þingflokknum

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar gagn­rýnir frétta­flutn­ing Vísis af stöðu for­manns­ins.

Jóhannes: Einungis „getgátur“ að Sigmundur njóti ekki stuðnings í þingflokknum

Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, telur að frétt Vísis um að Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra njóti stuðn­ings meiri­hluta þing­manna Fram­sókn­ar­flokks­ins til að gegna for­mennsku í flokknum byggi ein­ungis á get­gátum. Þetta leiðir hann af því að í upp­hafi frétt­ar­innar kemur fram að Sigurður Ingi sé „að öllum lík­indum“ með meiri­hluta þing­flokks­ins að baki sér. 

Í frétt Vísis segir meðal ann­ars: „Samkvæmt áræð­an­legum heim­ildum frétta­stofu eru allar líkur á að Sigurður Ingi njóti meiri­hluta­fylgis í þing­flokknum þótt for­mað­ur­inn eigi sér þar dygga stuðn­ings­menn. Þeirra á meðal eru Ásmundur Einar Daðason og Vigdís Hauks­dóttir sem bæði ætla að hætta á þingi í haust og Gunnar Bragi Sveins­son sem mun leiða flokk­inn í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.“

Jóhannes Þór gerir athuga­semd við frétt­ina á Facebook, þar sem blaða­maður á Frétta­blað­inu hefur deilt henni. „Að öllum lík­indum? Eru fréttir nú byggðar á skyggni­lýs­ingum? Eða ósk­hyggju?“ spyr Jóhannes. Þá segir hann „svo­lítið sér­stakt að sjá heila frétt byggða á get­gátum“. Fréttin segi ekk­ert hald­bært um það sem þó eigi að heita aðal­efni hennar.

Sig­mundur Davíð hefur sjálfur einnig gagn­rýnt fjöl­miðla fyrir frétta­flutn­ing af sér og meintu tölvu­inn­broti:

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár