„Ísland orðið að fyrirmynd í samfélagi þjóðanna“

Of mikil áhersla er lögð á hið nei­kvæða að sögn for­sæt­is­ráð­herra. Hann hvetur Íslend­inga til að nota fán­ann í auknum mæli og segir að Dönum finn­ist eðli­legt að kalla Danmörku besta land í heimi.

„Ísland orðið að fyrirmynd í samfélagi þjóðanna“

Hrópað var og púað á Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, meðan hann hélt hátíð­ar­ræðu sína á Aust­ur­velli á tólfta tím­anum. Þótt prúð­búnir þjóð­há­tíð­ar­gestir, á afgirtu svæði Aust­ur­vallar milli þing­húss­ins og stytt­unnar af Jóni Sig­urðs­syni, ættu erfitt með að heyra orða­skil fyrir hávað­anum hélt Sig­mundur sínu striki. Hann hvatti þjóð­ina til dáða og brýndi fyrir Íslend­ingum að standa saman og gleðj­ast yfir fram­förum. Að sögn for­sæt­is­ráð­herra finnst Dönum eðli­legt að kalla Danmörku besta land í heimi. Íslend­ingar ættu að sama skapi að vera jákvæðir og nota fán­ann sinn í auknum mæli.  

„Flestir geta lík­lega sam­mælst um að 17. júní sé dagur til að gleðj­ast. Við höldum hátíð og gleðj­umst yfir því að vera hluti af þeirri marg­breyti­legu stór­fjöl­skyldu sem kallar sig Íslend­inga. Þannig snýst dag­ur­inn líka um sam­heldni, hann minnir okkur á að við séum öll einn hópur, hópur með sam­eig­in­lega sögu og menn­ingu og hópur sem tekst í sam­ein­ingu á við raunir og tæki­færi,“ sagði Sig­mundur og bætti því við að dag­ur­inn sner­ist einnig um sjálfs­traust.

„Hann snýst um að við minn­umst þess að við höfum ástæðu til að hafa trú á okkur sjálfum sem þjóð, hafa trú á því að í sam­ein­ingu getum við náð miklum árangri. Við lýð­veld­is­stofnun árið 1944 skorti Íslend­inga ekki sjálfs­traust og sam­heldni, ekki frekar en þegar þeir ákváðu að verða full­valda þjóð, um ald­ar­fjórð­ungi fyrr. En þrátt fyrir áræði og trú á land­inu þorðu lík­lega fáir að vona, að fáeinum ára­tugum seinna yrði Ísland orðið að fyr­ir­mynd í sam­fé­lagi þjóð­anna. Að vel­ferð­ar­mæli­kvarðar sýndu fram­úr­skar­andi árangur á flestum sviðum; að almennt heil­brigði hefði auk­ist stór­kost­lega, að hér væru lífslíkur einar þær bestu í ver­öld­inni, atvinnu­leysi minna en ann­ars staðar og kynja­jafn­rétti hvergi meira.

For­sæt­is­ráð­herra full­yrti að trúin á fram­tíð­ina hefði skilað Íslend­ingum langt. Þjóðin hefði í áranna rás horft til fram­fara og byggt sam­fé­lagið skyn­sam­lega upp á grunni þess sem gengnar kyn­slóðir veittu í arf. „Það er hlut­verk okkar sem nú byggjum landið að skrifa næstu kafla þeirrar fram­fara­sögu,“ sagði hann. Þá taldi hann upp aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar og sagði bjarta tíma framundan. 

„Þjóð­há­tíð­ar­dag­ur­inn 17. júní skipar margs konar sess í hugum okkar. Hann er dagur til að gleðj­ast yfir því sem vel hefur tek­ist við upp­bygg­ingu sam­fé­lags­ins, dagur til að minn­ast þeirra braut­ryðj­enda sem fyrr á tíð skópu fram­tíð þjóð­ar­innar með bar­áttu sinni og dagur til að virkja sam­taka­mátt okkar og setja mark­iðin enn hærra en áður til heilla fyrir fram­tíð­ar­kyn­slóðir lands­ins. Íslend­ingar hafa þegar náð árangri sem hlýtur að telj­ast merki­legur. Það er nán­ast sama um hvaða svið er að ræða, hvort sem það er keppni í íþróttum, listir eða vís­indi, okkar litla sam­fé­lag á fjölda full­trúa sem skara fram úr á heims­vísu. Og það er mik­il­vægt að muna að við getum nýtt sama drif­kraft til fram­fara inn­an­lands.“

„Við eigum líka að leyfa okkur að gleðj­ast yfir því góða á hátíð­legri stund eins og þess­ari og láta gleð­ina veita okkur hvatn­ingu til áfram­hald­andi fram­fara“

Næst gerði hann afmæli kosn­inga­réttar kvenna að umtals­efni og minnti á að árið 1915 fengu ekki aðeins konur kosn­inga­rétt í Alþing­is­kosn­ingum heldur einnig verka­menn og verr stæðir karl­menn sem ekki höfðu haft kosn­inga­rétt fram að því.

Sig­mundur sagði að sam­kvæmt skýrslu Sam­ein­uðu þjóð­anna teld­ust Íslend­ingar hafa fleiri til­efni til að vera ham­ingju­samir en flestar aðrar þjóðir heims. „Raunar er bara eitt land annað sem telst búa við jafn mikil lífs­gæði og Íslend­ingar. En hvað finnst okkur sjálfum?“ spurði hann og svar­aði: „Stundum virð­ist sem fremur sé lögð áhersla á hið nei­kvæða en að meta það sem vel hefur reynst og nýta þann árangur til að gera enn betur. Við getum vissu­lega gert betur á mörgum sviðum en besta leiðin til þess er sú að meta það sem vel hefur reynst og gera enn meira af því en minna af hinu. Við eigum líka að leyfa okkur að gleðj­ast yfir því góða á hátíð­legri stund eins og þess­ari og láta gleð­ina veita okkur hvatn­ingu til áfram­hald­andi fram­fara.“

Sig­mundur benti á að á morgun fara fram þing­kosn­ingar í Danmörku. „Þegar for­sæt­is­ráð­herra lands­ins boð­aði til kosn­inga hafði hann á orði að Danmörk væri besta land í heimi. Leiðtogi stjórn­ar­and­stöð­unnar gerði engan ágrein­ing um það. Danmörk væri svo sann­ar­lega besta land í heimi …en það gæti orðið enn betra,“ sagði Sig­mundur. „Í heild­ar­sam­hengi hlut­anna hljótum við Íslend­ingar að geta verið sam­mála um að Ísland sé að minnsta kosti nokkuð gott land og lík­lega bara mjög gott land, þótt það geti vissu­lega orðið enn betra.“

Sig­mundur sagði að allir þjóð­há­tíð­ar­gestir ættu það sam­eig­in­legt að vilja „bæta landið okkar, bæta sam­fé­lagið og búa fram­tíð­ar­kyn­slóðum örugga fram­tíð í góðu landi“. 17. júní minnti Íslend­inga á að standa vörð um árangur fyrri kyn­slóða og skila kom­andi kyn­slóðum enn betra sam­fé­lagi.

Þá gerði hann íslenska fán­ann að umtals­efni: „Daginn sem íslenskar konur og verka­menn fengu kosn­inga­rétt árið 1915 gerð­ist fleira sögu­legt. Þann sama dag fengum við Íslend­ingar eigin þjóð­fána.  Fánann sem við flöggum stolt á þessum degi um land allt. Það er vel við hæfi að þetta hafi gerst sama dag. Fáninn táknar nátt­úru lands­ins og trúna og menn­ing­ar­arf­inn en hann er líka merki frelsis, lýð­ræðis og jafn­ræðis.“

Ræðunni lauk Sig­mundur á þessum orðum: „Á hund­rað ára afmæl­is­ári þjóð­fán­ans taka gildi ný lög um notkun fán­ans. Við skulum temja okkur að nota þennan fal­lega fána meira en um leið vinna áfram að meira jafn­rétti, meira lýð­ræði og meiri fram­förum. Meira af því sem á að gera okkur stolt á þessum degi og alla aðra daga, meira af því sem gerir okkur stolt af Íslandi.“

Viðbót kl. 15:10:  

Í stöðu­upp­færslu sem for­sæt­is­ráð­herra birti á Facebook kl. 15 óskar hann lands­mönnum öllum gleði­legrar hátíðar og færir sér­stakar þakkir til „þeirra sem komu að því að gera hátíðar- og minn­ing­ar­stund á Aust­ur­velli í dag sem best úr garði.“ Þá bætir hann við: „Það var ákaf­lega ánægju­legt að sjá allt þetta unga hæfi­leika­fólk, ung­menna­kór, skát­ana, lög­regl­una, lúðra­sveit, Mótettukór Hall­gríms­kirkju og fjall­kon­una standa sig frá­bær­lega, þrátt fyrir hróp, köll og bumbu­slátt undir tón­listar- og ljóða­flutn­ingi. Fyrir það og fram­lag allra ann­arra sem lögðu sitt af mörkum til að gera þessa hátíð­ar­stund sem best úr garð færi ég kærar þakkir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

Kristján Þór og Þorsteinn Már „nánir  vinir“ í skilningi stjórnsýslulaga
FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Af hverju er spilling frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár