Ingibjörg Dögg tilnefnd til blaðamannaverðlauna

Rit­stjóri Stund­ar­innar, Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, hefur verið til­nefnd til blaða­manna­verð­launa Íslands fyrir umfjöllun sína Eng­ill­inn sem villt­ist af leið.

Ingibjörg Dögg tilnefnd til blaðamannaverðlauna
Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir Annar rit­sjóri Stund­ar­innar. Mynd: Kristinn Magnússon

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, rit­stjóri Stund­ar­innar, hefur verið til­nefnd til blaða­manna­verð­launa fyrir grein um ævi og örlög Krist­ínar Gerðar Guð­munds­dóttur. Kristín Gerður svipti sig lífi eftir að hafa lent í víta­hring geð­sjúk­dóma og fíknar, sem knú­inn var áfram af afleið­ingum ofbeldis og vændis.

Í grein­inni, sem titluð er Eng­ill­inn sem villt­ist af leið, er meðal ann­ars stuðst við dag­bók­ar­færslur Krist­ínar Gerðar sjálfrar og rætt við systur hennar til að varpa ljósi á áhrif ofbeldis og vændis á sál­ar­heill og þau örlög sem fylgt geta í kjöl­farið. Stuðst var við fleiri heim­ildir en þeirra á meðal voru nafn­laus við­töl sem Kristín Gerður veitti á meðan hún lifði og skýrsla dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins þar sem hún sagði frá reynslu sinni.

Þetta er fimmta til­nefn­ing Ingi­bjargar Daggar til blaða­manna­verð­launa á sjö árum.

Í fyrra var hún til­nefnd sem blaða­maður árs­ins fyrir „fjöl­breytta og mik­il­væga umfjöllun um kyn­bundið ofbeldi“. Árið áður fékk hún til­nefn­ingu fyrir umfjöllun árs­ins fyrir greina­röð um alzheimer og heila­bilun. Árið 2011 var hún til­nefnd sem blaða­maður árs­ins fyrir fjöl­breytt og mik­il­væg skrif um sam­fé­lags­vanda­mál, svo sem ofbeldi, einkum er vörð­uðu hlut­skipti kvenna. Árið 2010 vann hún í flokki rann­sókn­ar­blaða­mennsku „fyrir áleitna og vand­aða umfjöllun um kyn­ferð­is­brota­mál og for­ystu um skrif á þessu sviði, svo sem um bisk­ups­málið og önnur meint kyn­ferð­is­brot innan kirkju og trú­fé­laga.“

Til­nefn­ingin er í flokknum við­tal árs­ins.

Greinina má lesa hér.

Allar tilnefningar til blaðamannaverðlauna

Viðtal ársins

Auður Ösp Guð­munds­dóttir, DV.

Fyrir við­tal við Margréti Fenton um örlög dóttur hennar, Söndru Sigrúnar, sem afplánar nú 37 ára fang­elsi fyrir vopnuð rán í Banda­ríkj­unum.

Helgi Seljan, Kast­ljósi RÚV.

Fyrir við­tal við hjónin Sigrúnu Eyrúnu Frið­riks­dóttur og Karl Olgeirs­son um barns­missi sem þau urðu fyrir vegna mis­taka í fæð­ingu á Land­spít­al­anum.

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, Stund­inni.

Fyrir við­tal við Berg­lindi Ósk Guð­munds­dóttur sem segir sögu systur sinnar, Krist­ínar Gerðar, sem svipti sig lífi eftir ára­langa bar­áttu við eit­ur­lyfjafíkn og afleið­ingar mis­notk­unar.

Rannsóknarblaðamennska ársins

Hörður Ægisson, DV. 

Fyrir umfjöllun um millj­arða bón­us­greiðslur slita­stjórna Kaup­þings og ALMC sem greiddar voru í kjöl­far nauða­samn­inga og samn­inga um stöð­ug­leika­fram­lag. 

Tryggvi Aðal­björns­son, RÚV.

Fyrir umfjöllun um brot Brú­neggja ehf. gegn dýra­vernd og svik við neyt­endur og mátt­leysi eft­ir­lits­stofn­ana til að takast á við brotin.

Þórður Snær Júl­í­us­son, Kjarn­anum. 

Fyrir frétta­skýr­ingar um skipt­ingu auðs á Íslandi og mis­skipt­ingu gæða þrátt fyrir lít­inn launa­mun í alþjóð­legum sam­an­burði.

Umfjöllun ársins

Guðrún Hálf­dán­ar­dóttir, Mbl.is

Fyrir frétta­skýr­ingar um Sýrland, vax­andi þjóð­ern­is­hyggju í tengslum við flótta­menn þaðan og lít­inn áhuga ráða­manna í Evrópu fyrir að taka á móti þeim.

Sigrún Ósk Krist­jáns­dóttir, Stöð 2

Fyrir þátta­röð­ina Leitin að upp­runanum sem segir sögu þriggja ætt­leiddra kvenna og árang­urs­ríka eft­ir­grennslan landa á milli um rætur þeirra.

Svavar Hávarðs­son, Frétta­blað­inu

Fyrir frétta­röð um nátt­úruperluna Mývatn, þar sem mengun er marg­falt yfir við­miðum Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar, lík­ast til af manna­völdum.

Blaðamannaverðlaun ársins

Jóhanna Vigdís Hjalta­dóttir, RÚV.

Fyrir skil­merki­lega umfjöllun um íslensk stjórn­mál og vand­aðar frétta­skýr­ingar af störfum Alþingis, ekki síst á tímum póli­tísks óróa.

Jóhannes Kr. Krist­jáns­son,  Reykja­vík Media. 

Fyrir ítar­legar rann­sóknir á þeim hluta Panama­skjal­anna sem vörð­uðu íslenska hags­muni og  umfjöllun, í sam­starfi við aðra miðla, um mikil við­skipti í skatta­skjólum.

Ragnar Axelsson og Orri Páll Orm­ars­son,  Morg­un­blað­inu.

Fyrir áhrifa­mikla umfjöllun um áhrif lofts­lags­breyt­inga á Norð­ur­slóðum og sér­stak­lega hvernig þær breyta líf­inu á túndrum Síberíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár