Illugi hættir á þingi

Illugi Gunn­ars­son mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra mun ekki gefa kost á sér til setu á Alþingi í næstu kosn­ingum.

Illugi hættir á þingi

Illugi Gunn­ars­son, mennta-og menn­inga­mála­ráð­herra og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hyggst ekki gefa kost á sér til áfram­hald­andi setu á Alþingi í næstu kosn­ingum. Þetta til­kynnti hann á Facebook-síðu sinni í hádeg­inu, en hann er staddur á Ólymp­íu­leik­unum í Ríó í Brasilíu. Hann seg­ist standa á þeim tíma­mótum að annað hvort haldi hann áfram í stjórn­málum og geri þau að ævi­starfi, fái hann til þess stuðn­ing kjós­enda, eða snúi sér að öðrum verk­efnum. „Í ljósi þessa hef ég kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að um það bil 16 ára vera á sviði stjórn­mál­anna sé nægj­an­leg, a.m.k. að sinni og að skyn­sam­leg­ast og áhuga­verð­ast fyrir mig sé að leita nýrra áskor­anna á öðrum vett­vangi,“ skrifar hann. 

Illugi hefur verið mjög áber­andi í íslenskum stjórn­málum síð­ustu ár. Sem mennta­mála­ráð­herra stytti hann fram­halds­skóla­nám um eitt ár, skar niður alla kennslu fyrir stúd­ents­nem­endur eldri en 25 ára og þá á enn eftir að afgreiða umdeilt frum­varp hans um end­ur­skoðun á Lána­sjóði íslenskra náms­manna. Þá var Illugi tals­vert í fréttum á síð­asta ári vegna Orka Energy-máls­ins svo­kall­aða. 

 

Hér er yfir­lýs­ing Illuga í heild sinni:

Kæru vinir.

Eftir vand­lega yfir­legu hef ég ákveðið að ég muni ekki gefa kost á mér til setu á Alþingi í næstu kosn­ingum.

Allt frá því ég kom heim frá námi árið 2000 hafa stjórn­mál verið megin við­fangs­efni mitt og ég hef starfað sem aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra og utan­rík­is­rá­herra, gegnt þing­mennsku, verið þing­flokks­for­maður og nú síð­ast ráð­herra.

Þessi tími hefur verið sér­stakur í þjóð­ar­sög­unni, tími mik­illa átaka og stórra atburða sem marka munu íslenskt sam­fé­lag til fram­tíðar.

Ég er mjög þakk­látur fyrir það tæki­færi sem ég hef fengið til að taka virkan þátt í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni og sér­stak­lega vil ég þakka öllum þeim sem hafa stutt mig með ráðum og dáð á und­an­förnum árum, bæði í próf­kjörum sem og í stjórn­mála­starf­inu almennt.

En mat mitt er að ég standi nú á þeim tíma­mótum að annað hvort haldi ég áfram í stjórn­málum og geri þau að ævi­starfi, fái ég til þess stuðn­ing kjós­enda, eða snúi mér að öðrum verk­efnum. Í ljósi þessa hef ég kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að um það bil 16 ára vera á sviði stjórn­mál­anna sé nægj­an­leg, a.m.k. að sinni og að skyn­sam­leg­ast og áhuga­verð­ast fyrir mig sé að leita nýrra áskor­anna á öðrum vett­vangi.

Ég mun kveðja stjórn­málin sáttur, en vissu­lega með nokkrum sökn­uði. Um leið hlakka ég til að takast á við ný verk­efni, hver sem þau kunna að verða.

 

Sent from my iPad

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár