Hversdagsleikinn er hulduefnið

Hversdagsleikinn er hulduefnið
Björg Svein­björns­dóttir Flutti vestur á Ísafjörð og stofn­aði hvers­dags­safn. Mynd:

Björg Svein­björns­dóttir hélt til Ísa­fjarðar fyrir tveimur árum til að kynna bók sína, Hljóðin úr eld­hús­inu, og í þeirri ferð ákvað hún að flytja vestur. Nú hefur hún, ásamt vin­konu sinni, Vaida Bražiūnaitė, opnað Skó­búð­ina, hvers­dags­safn og verslun sem selur list og hönnun fólks sem ýmist býr á Ísafirði eða teng­ist svæð­inu. Hver er hug­myndin að baki þessu fram­taki?

„Skóbúðin er bæði safn og verslun, safnið köllum við hvers­dags­safnið, museum mundane, eins og það heitir á ensku, og við vinnum með sögur úr hvers­deg­inum. Við hittum sem sagt fólk af svæð­inu og flettum í gegnum fjöl­skyldu­albúm með því og fáum að heyra alls konar sögur og minn­ingar. Svo fáum við lán­aðar ljós­mynd­irnar, skönnum inn og setjum upp með sög­unni eða minn­ing­unni. Sýningin sem við erum með uppi núna eru sögur og ljós­myndir inni í gömlum bókum sem bóka­safnið var að losa sig við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár