Hvað á að gera við ofurkornið?

Hrærð egg með beikoni, korni og sveppum. Nanna Rögn­valdar kennir okkur á kornið og gefur okkur upp­skriftir með girni­legum réttum sem inni­halda kínóa, farró, hirsi, hveiti­korn, amar­anth, bók­hveiti, bulgur eða bygg.

Hvað á að gera við ofurkornið?

Á sein­ustu árum hafa ýmsar korn­teg­undir, sem áður var erfitt eða alls ekki hægt að fá hér­lendis, orðið æ algeng­ari; það eru ekki bara trjáfaðm­andi hippar og aðrir furðu­fuglar sem kaupa þær og elda – nei, heilsu­bylgjan hefur gert það að verkum að heil­korn og ýmsar óvenju­legar korn­teg­undir eru allt í einu kúl og það er eig­in­lega engin kona með konum nema hún fái sér bygg­grjóna­graut í morg­un­mat­inn og kínóa­salat í hádeg­inu eða kunni að minnsta kosti að búa til tabbouleh. Og það er auð­vitað hið besta mál því þótt þetta sé kannski ekki það ofur­korn sem sumir vilja vera láta er flest af þessu afbragðs­gott holl­meti sem einnig skapar aukna fjöl­breytni í mat­ar­gerð­inni.

Svo er það nátt­úr­lega glút­enógnin ógur­lega, lág­kol­vetna­lífs­stíll­inn og paleomatar­æðið. Allt þetta hefur gert að verkum að margir eru farnir að leita í teg­undir sem voru nán­ast alveg gleymdar eða ekki þekktar nema í afkimum heims­ins …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár