Tilkynning: Hundrað þúsund lásu Stundina

Fjölgað í rit­stjórn Stund­ar­innar.

Tilkynning: Hundrað þúsund lásu Stundina

Fyr­ir­vari vegna hags­muna: Eft­ir­far­andi er frétt um Stundina skrifuð af rit­stjórn Stund­ar­innar.

Rúmlega hund­rað þús­und not­endur voru að vef­síðu Stund­ar­innar í síð­ustu viku, sam­kvæmt opin­berum vef­mæl­ingum Modernus. Þetta gerir Stundina að tíunda mest lesna vef lands­ins átta vikum eftir opnun.

Stundin var stofnuð í jan­úar síð­ast­liðnum með hjálp hóp­fjár­mögn­unar á síð­unni Karolina fund. Um 1.250 ein­stak­lingar styrktu stofnun Stund­ar­innar og safn­að­ist hærri upp­hæð en áður hefur gerst í sögu hóp­fjár­mögn­unar á Íslandi.

Áskriftarmiðill á vefnum

Stundin kemur út í dag­legri vef­út­gáfu og mán­að­ar­legri prentút­gáfu. Vefur Stund­ar­innar er áskrift­ar­mið­ill. Áskrift­ar­kerfi Stund­ar­innar á sér að hluta fyr­ir­mynd í áskrift­ar­kerfi New York Times á vefnum. Þannig er hluti vefs­ins opinn, en sett er hámark á það hversu oft sé hægt að fletta greinum án þess að greiða áskrift­ar­gjald sem nemur 750 kr. á mán­uði. Þannig fá þeir sem ekki eru áskrif­endur sex rit­stjórn­ar­greinar í fullri lengd fríar í hverjum mán­uði gegn því að þeir skrái sig sem not­endur. 

Prentút­gáfa Stund­ar­innar hefur komið út þrisvar og er von á fjórða tölu­blaði til áskrif­enda og í versl­anir 7. maí næst­kom­andi.

Stundin gerði tölvu­póst­könnun á meðal áskrif­enda í síð­asta mán­uði. Rúmlega þús­und svör bár­ust. 

Niðurstöður áskrifendakönnunar

Meðal nið­ur­staðna eru að um 90% svar­enda kváðu lík­legt að þeir myndu mæla með Stund­inni við ætt­ingja eða vini, en 8% kváðu það hvorki lík­legt né lík­legt. Þá sögð­ust 1,8% telja það ólík­legt. 

93% svar­enda töldu aug­lýs­inga­magn vera hæfi­legt. Aug­lýs­inga­magn í prent­blaði Stund­ar­innar er um 25%, en í frí­blöðum fer það yfir 70%.

Þegar spurt var hversu vel svar­endum þættu til­tekin hug­tök eiga við um Stundina reynd­ust 90% vera sam­mála því að Stundin væri traust­vekj­andi, 92% töldu hana vera fræð­andi og 95% áhuga­verð.

Ritstjórnin stækkuð

Vegna fjölg­unar áskrif­enda hefur verið unnt að stækka rit­stjórn Stund­ar­innar síð­ustu vikur. Blaða­konan Áslaug Karen Jóhanns­dóttir hóf störf í síð­asta mán­uði, en hún starf­aði áður á Skessu­horni og DV. Í síð­ustu viku hóf Ingi Freyr Vil­hjálms­son blaða­maður störf. Ingi hefur meðal ann­ars starfað sem blaða­maður á Frétta­blað­inu og frétta­stjóri DV. Ingi hefur þrisvar verið til­nefndur til blaða­manna­verð­launa, þar af tvisvar fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins. Einnig hefur Jón Bjarki Magn­ús­son blaða­maður hafið skrif fyrir Stundina. Hann hlaut blaða­manna­verð­laun árs­ins síð­ast­liðin tvö ár í röð, ann­ars vegar fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku og sem blaða­maður árs­ins. 

Fyrir eru starf­andi á Stund­inni Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir rit­stjóri, Jón Trausti Reyn­is­son, rit­stjóri og fram­kvæmda­stjóri, Hjálmar Frið­riks­son blaða­maður og Jóhann Páll Jóhanns­son blaða­maður.

Að auki skrifa fjöl­margir reglu­lega eða óreglu­lega í Stundina, ýmist sem blogg­arar, lausa­pennar eða pistla­höf­undar. Meðal þeirra eru Ásgeir Jónsson, Ásta Helga­dóttir, Benedikt Erlings­son, Benjamín Julian, Bergþór Pálsson, Björn Þor­láks­son, Ellert Grét­ars­son, Freyja Búa­dóttir, Guð­mundur Hörður Guð­munds­son, Hanna Ólafs­dóttir, Hall­grímur Helgason, Jóhannes Björn, Jón Ólafsson, Kristján Már Gunn­ars­son, María Lilja Þrast­ar­dóttir, Nanna Rögn­valdar, Ólöf Stein­unn­ar­dóttir, Óskar Ericsson, Óttar Guð­munds­son, Páll Ásgeir Ásgeirs­son, Ragnar Þór Pét­urs­son, Sigrún Dan­í­els­dóttir, Smári McCarthy, Snæbjörn Brynjars­son, Svava Jóns­dóttir, Teitur Atlason og Þórdís Elva Þor­valds­dóttir.

Gert er ráð fyrir að frek­ari fjölgun á rit­stjórn hald­ist í hendur við þróun áskrifta­tekna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár