Hörð orð falla á Alþingi: „Meiriháttar stjórnskipunarkrísa“

Forseti Alþingis segir það í höndum Alþingis að ákveða um fram­hald máls­ins. Bjarni segir að meiri­hlut­inn ráði. Mótmæli á Aust­ur­velli.

Hörð orð falla á Alþingi: „Meiriháttar stjórnskipunarkrísa“
Meiri­hlut­inn ræður Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, sagði málið óskap­lega skýrt - meiri­hlut­inn ræður. Mynd: Pressphotos

„Stóru tíð­indi dags­ins eru þau að við­ræðum hefur ekki verið slitið og það tel ég gott,“ sagði Guð­mundur Stein­gríms­son for­maður Bjartrar fram­tíðar á Alþingi fyrir skömmu síðan en í ræðu Einars K. Guð­finns­sonar, for­seta Alþingis, kom meðal ann­ars fram að þings­á­lykt­un­ar­til­laga fyrri rík­is­stjórnar frá 2009 væri enn í gildi. Það væri í höndum Alþingis að ákveða um fram­hald máls­ins. 

„For­dæma­laust laun­ráð og und­ir­hyggja“

Þing­fundur hófst klukkan þrjú nú síð­degis með óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma. Bréf Gunnars Braga Sveins­sonar til for­ystu Evr­ópu­sam­bands­ins var til umræðu og ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar um að draga aðild­ar­um­sókn Íslands til baka. Í kjöl­farið hófst umræða um stöðu Alþingis gagn­vart fram­kvæmda­vald­inu. Hörð orð hafa fallið og gagn­rýnir stjórn­ar­and­staðan rík­is­stjórn­ina harð­lega. 

Róbert Marshall, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, sagði meiri­háttar stjórn­skip­un­ar­krísu ríkja á Alþingi vegna þeirrar ákvörð­unar rík­is­stjórn­ar­innar að slíta aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið án sam­ráðs við þingið. „For­dæma­laust laun­ráð og und­ir­hyggja,“ sagði Árni Páll Árnason for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ESB

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár