Kínverskir ferðamenn lenda í tugum bílslysa á Íslandi

Umferð­ar­slysum þar sem öku­menn eru erlendir ferða­menn á bíla­leigu­bílum hefur fjölgað ört á und­an­förnum árum. Þar sker sig út einn hópur öku­manna en þeir koma frá Asíu. Van­kunn­átta er talin helsta orsök slysanna.

Kínverskir ferðamenn lenda í tugum bílslysa á Íslandi
Bíl­veltur Ein af algeng­ustu teg­undum umferð­ar­slysa eru bíl­veltur á mal­ar­vegum og í hálku. Myndin teng­ist efn­inu ekki beint.

Árið 2014 slös­uð­ust þrír ferða­menn frá Kína lít­il­lega í umferð­ar­slysum á þjóð­vegum lands­ins en í fyrra voru þeir 36. Þar af voru 6 sem slös­uð­ust alvar­lega, 29 sem slös­uð­ust lít­il­lega og einn sem lést. Þá lést einn ferða­maður frá Japan á síð­asta ári, einn slas­að­ist alvar­lega og sjö lít­il­lega í fyrra sem er aukn­ing frá árinu áður. Sömu sögu er að segja af ferða­mönnum frá Hong Kong en í fyrra lést einn ferða­maður og sjö slös­uð­ust lít­il­lega. Þessi gríð­ar­lega aukn­ing hefur vakið áhyggjur fjöl­margra, þar á meðal Sam­göngu­stofu, inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, trygg­inga­fé­lag­anna og þeirra fyr­ir­tækja sem leigja út bif­reiðar til ferða­manna.

„Eftir rúma klukku­tíma kennslu þá ók hann af stað. Stuttu seinna velti hann bílnum á Reykja­nes­braut­inni“

En hver er skýr­ingin? Eftir því sem blaða­maður Stund­ar­innar kemst næst er um að kenna van­kunn­áttu þess­ara öku­manna sem virð­ast í ein­hverjum til­fellum aðeins sitja nám­skeið í heima­landi sínu til þess að öðl­ast öku­rétt­indi en hafa aldrei setið undir stýri. Þá hefur ein­hver hluti af umræddum hópi öku­manna tekið öku­próf í sér­stökum öku­hermi ytra en þar virð­ist ekki gert ráð fyrir að ekið sé í hálku eða á mal­ar­vegum.

Meðal þeirra sem Stundin ræddi við voru starfs­menn bíla­leiga á Kefla­vík­ur­flug­velli en það eru þeir sem sjá um að afhenda ferða­mönnum bíla­leigu­bíla þegar þeir lenda hér á landi. Í flestum til­vikum ganga slíkar afhend­ingar snuðru­laust fyrir sig og eru menn orðnir ansi lunknir við að afhenda tölu­verðan fjölda bíla­leigu­bíla á stuttum tíma. Að und­an­förnu hefur þó þessi tími lengst tölu­vert líkt og Stundin komst að en þó er ekki að sakast við starfs­menn bíla­leig­unnar heldur er um að kenna van­kunn­áttu þeirra öku­manna sem taka umrædda bíla á leigu. Sumir, eins og áður segir, hafa hrein­lega aldrei sest undir stýri á alvöru bíl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár