Heilsumeistarar kvarta undan „nornaveiðum“

Heilsu­m­eist­ara­skól­inn varar við umfjöllun fjöl­miðla um heild­rænar með­ferðir og kallar þær „norna­veiðar“.

Heilsumeistarar kvarta undan „nornaveiðum“
Barn með misl­inga Heilsu­m­eist­ara­skól­inn lýsir efa­semdum um áhrif bólu­setn­inga.

Heilsu­m­eist­ara­skól­inn kennir með­ferðir við ýmsum kvillum sem hafa ýmist enga vís­inda­lega stað­fest­ingu, raun­veru­lega virkni, eða hafa verið afsann­aðar. Í kynn­ingu á nám­inu er vísað til mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins. „Námið er við­ur­kennt sem 107 ein­inga nám frá Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu.“

Áhrif sem vísindin geta ekki skýrt

Meðal fræða sem kennd eru í Heilsu­m­eist­ara­skól­anum eru tvær námslotur sem kall­ast Kjarna­ol­íur 1 og 2 og er þar kennt um ilm­kjarna­olíur, sam­setn­ingu þeirra og efna­fræði. Lækn­ir­inn Björn Geir Leifsson hefur gagn­rýnt full­yrð­ingar um heilsu­á­hrif ilm­kjarna­olíu á vefnum upp­lyst.org. 

Samkvæmt Birni Geir snýst þetta um „að ilm­andi olíur sem soðnar eru úr alls konar plöntum eigi að hafa ein­hver dásam­leg, lækn­andi áhrif gegnum húð eða við inn­öndun, sem vís­indin geta ekki skýrt,“ og segir í grein hans. 

Stundin birti dæmi þess að heilsu­m­eist­ari bauð ein­stak­lingi með syk­ur­sýki, van­virkan skjald­kirtil og lungna­veik­indi, lækn­inga­með­ferð sem myndi „vinna á orku­kerfin“; styrkja lifur, melt­ingu og lungu.

Auk hvítu- og lit­himnu­grein­ing­ar­innar, eru einnig kennd fræði ilm­kjarna­olía og blóma­dropa, en ekk­ert af þessu hefur neina sann­aða virkni. Heilsu­m­eist­ara­skól­inn inn­heimtir því hund­ruð þús­unda króna fyrir kennslu í fræðum sem hafa ekki neina stað­festa eða raun­veru­lega virkni fyrir utan lyf­leysu­á­hrif. 

Gríðarleg hækkun í ársgjöldum

Námið tekur í heild­ina þrjú ár og er inn­rit­un­ar­gjaldið við skól­ann 287.500 kr. en þar að auki þarf að greiða 33.500 kr. fyrir hvern mánuð sem námið tekur, sem eru 36 mán­uðir í heild­ina. Heild­ar­kostn­aður fyrir eitt ár í skól­anum er 402.000 kr. 
Árleg skóla­gjöld við Heilsu­m­eist­ara­skól­ann voru 27.900 kr. árið 2011, svo þau hafa hækkað um um það bil 1.240% miðað við verð­bólgu og vísi­tölu síð­ast­liðin fjögur ár. Í útskýr­ingum á skóla­gjöld­unum kemur einnig fram að þau séu ætluð fyrir náms­gögn sem fylgja kennslu­lotum, kjarna­ol­íur, blóma­dropar, líf­rænt græn­met­is­fæði í námslotum eftir því sem við á, lif­andi fæði og fleira. Haft var sam­band við Lilju Odds­dóttur, skóla­meist­ara Heilsu­m­eist­ara­skól­ans en engin svör feng­ust um hvað orsak­aði hækkun á skóla­gjöldum til skól­ans.

„Það er kannski bara ekki rétt að segja að bólu­setn­ingar hafi bjargað mál­unum.“

Ósátt við umfjallanir fjölmiðla

Á póst­lista Heilsu­m­eist­ara­skól­ans var nýlega sendur út póstur þar sem sagt var frá umfjöllun fjöl­miðla um heild­rænar lækn­ingar og er talað um umfjöll­un­ina sem „norna­veiðar nútím­ans“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sala á ósönnuðum meðferðum

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár