Heiðvirður þingmaður fallinn frá

Pétur Blöndal, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lést um helg­ina í faðmi fjöl­skyld­unnar. Hans er minnst af alþing­is­mönnum fyrir dugnað og heið­ar­leika. Hann fylgdi eigin sann­fær­ingu frekar en flokkslínum.

Heiðvirður þingmaður fallinn frá
Pétur að störfum Pétur Blöndal djúpt sokk­inn í vinnu. Við hlið hans situr Margrét Tryggva­dóttir þing­maður. Mynd: Pressphotos

Alþing­is­mað­ur­inn Pétur H. Blöndal lést af völdum krabba­meins á heim­ili sínu, í faðmi fjöl­skyld­unnar, síð­ast­liðið föstu­dags­kvöld. 

Pétur var þing­maður fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í tvo ára­tugi. Sam­starfs­fólk Péturs í gegnum tíð­ina minn­ist hans af virð­ingu og hlý­leika, óháð flokkum. Pétur var meðal þeirra þekktur fyrir mik­inn dugnað og heið­ar­leika.

Fylgdi eigin sannfæringu

Margrét Tryggva­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Borg­ara­hreyf­ing­ar­innar, segir frá reynslu sinni af Pétri á Facebook-síðu sinni í dag. Hann hafi unnið af dugn­aði og ósér­hlífni. Hún minn­ist sam­tala sem hún átti við hann. 

„Ég mun sakna Péturs. Við vorum ekki alltaf sam­mála en mætt­umst oft á miðri leið og gátum svo sann­ar­lega alltaf rætt málin í góðri sátt. Við ræddum oft um heima og geima; lang­hlaup, fíkni­sjúk­dóma, barna­upp­eldi og ræktun app­el­sínu­trjáa svo eitt­hvað sé nefnt. Það var alltaf hægt að treysta því að hann fylgdi sinni sann­fær­ingu sem stundum gekk þvert á vilja flokks­for­yst­unnar. Hann var svo­lít­ill pönk­ari inn við beinið, hugs­aði oft út fyrir kass­ann og reyndi að smíða nýjar lausnir.“

Langhlaupari sem fór eigin leiðir

Margrét er ein þeirra sem segja frá vinnu­semi Péturs. „Fáa hef ég hitt vinnu­sam­ari. Hann taldi ekki eftir sér, þrátt fyrir erfið veik­indi, að standa vakt­ina í þing­sal lengur en allir aðrir. Ég man sér­stak­lega eftir að hafa heyrt í honum eldsnemma í morg­un­þætti í útvarp­inu. Hann hafði komið beint úr þing­inu þar sem hann hafði talað um Icesave alla nótt­ina. Svo sátum við saman á nefnd­ar­fundum til hádegis og eftir það tóku þing­störfin við og alltaf harð­neit­aði Pétur að fara heim og hvíla sig. Hann sagði að maður sem væri búin að hlaupa Lauga­veg­inn margoft gæti vel sleppt því að sofa við og við. „Farið þið heim, þið eigið fjöl­skyldu og börn,“ sagði hann gjarna. Hann Pétur var góður og merki­legur maður.“

„Hann Pétur var góður og merki­legur maður.“

Karen Kjart­ans­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Lands­sam­bands íslensra útvegs­manna og fyrr­ver­andi frétta­maður, segir sögu af seiglu Péturs á sinni Facebook-síðu. „Pétur var eitt sinn í útlöndum. Hann vildi hlaupa mara­þon en var skó­laus. Hann keypti sér því par og lagði af stað. Fljót­lega fann hann að þeir voru ekki við hans hæfi, eða eins og hann sagði: „Ég missti allar tánegl­urnar en maður heldur samt alltaf áfram og klárar verk­efnin.“ Þetta fannst mér lýsandi fyrir hann. Blessuð sé minn­ing Péturs.“

Þekktur fyrir dugnað og orðheldni

Þingmaður í tvo áratugi
Þing­maður í tvo ára­tugi Pétur kom fyrst inn á Alþingi árið 1995.

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, deilir reynslu sinni af Pétri. Hann lýsir einnig heið­ar­leika Péturs.

„Pétur var skemmti­legur sam­starfs­maður, orð­held­inn og ein­beittur. Við unnum oft saman og deildum um margt, en náðum vel saman í bar­átt­unni gegn því að láta líf­eyr­is­sjóði almenn­ings greiða hús­næð­is­skuldir sumra. Svo deildum við áhuga á lang­hlaupum og hlupum stundum saman.“

Hildur Sverr­is­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er önnur þeirra sem lýsa dugn­aði og heið­ar­leika Péturs. „Mér þykir afskap­lega vænt um sam­starf og við­kynni okkar Péturs Blöndal. Hann var dug­legur stjórn­mála­maður sem fylgdi alltaf sann­fær­ingu sinni en bar jafn­framt virð­ingu fyrir skoð­unum ann­arra. Hann hefði varla geta gefið ungum stjórn­mála­manni betra vega­nesti. Minning um góðan mann mun lifa.“

Doktor í stærðfræði á Alþingi

Á tveggja ára­tuga ferli sínum á Alþingi barð­ist Pétur fyrir rétt­indum og stöðu ein­stak­linga sem varðar fjár­mál, hús­næð­is­mál, líf­eyr­is­mál og fleira. Samkvæmt svörum Péturs í hags­muna­skrán­ingu Alþingis borg­aði hann sjálfur fyrir próf­kjör sín að mestu og þáði ekki háa styrki. „Hef farið í 6 próf­kjör og greitt þau öll sjálfur (alls senni­lega 9 m.kr.) utan einn styrk árið 2007 upp á 700 þ.kr. (prentun og hönnun á bæk­ling).“

Hann þáði engar gjafir, fór í engar boðs­ferðir, fékk aldrei nið­ur­felldar skuldir hjá sjálfum sér eða einka­hluta­fé­lagi sínu.

Pétur fædd­ist árið 1944 og var 71 árs þegar hann lést eftir langvar­andi bar­áttu við krabba­mein.

Hann var með dokt­ors­próf í stærð­fræði frá Köln­ar­há­skóla, en þar nam hann eðl­is­fræði, stærð­fræði, tölv­un­ar­fræði, alþýðu­trygg­ingar og lík­inda­fræði. Á ferli sínum skrif­aði Pétur margar greinar í blöð og tíma­rit um hús­næð­is­mál, fjár­mál og líf­eyr­is­mál.

Pétur lætur eftir sig sex börn eða kjör­börn. Hann var giftur Moniku Blöndal og eign­að­ist 4 börn og þar af 3 kjör­börn; Davíð (1972), Dagnýju (1972), Stefán Patrik (1976), og Stellu Maríu (1980). Pétur hóf svo sam­búð með Guðrúnu Birnu Guð­munds­dóttur og áttu þau saman Baldur Blöndal (1989) og Eydísi Blöndal (1994). Þann átt­unda maí síð­ast­lið­inn kvænt­ist Pétur að nýju unn­ustu til níu ára.

Tók veikindunum af æðruleysi

Börn Péturs greindu fyrst frá and­láti hans á Facebook-síðu hans í dag. 

„Ástkær faðir okkar Pétur H. Blöndal lést úr krabba­meini á heim­ili sínu í faðmi fjöl­skyld­unnar að kvöldi 26. júní 2015. Hann tók veik­indum sínum af æðru­leysi og í sam­ræmi við lífs­við­horf sín kvart­aði hann aldrei heldur hélt áfram að vera virkur þar til alveg undir lokin. — Davíð, Dagný, Stefán, Stella María, Baldur og Eydís.
Útförin fer fram í kyrr­þey að hans ósk. Blóm og kransar eru vin­sam­leg­ast afþakk­aðir en þeim sem vilja minn­ast hans er bent á Minn­ing­ar­sjóð krabba­meins­lækn­inga­deildar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár