Harðorð yfirlýsing frá Pírötum: Fjármálaráðherra uppvís að spillingu og lygum

„Í sið­uðum lýð­ræð­is­ríkjum er það kallað spill­ing þegar stjórn­mála­menn beita opin­beru emb­ætti í þágu per­sónu­legra og póli­tískra hags­muna. Þá er það kallað lygi, þegar menn fara vís­vit­andi með rangt mál.“

Harðorð yfirlýsing frá Pírötum: Fjármálaráðherra uppvís að spillingu og lygum

Þing­flokkur Pírata hefur sent út harð­orða yfir­lýs­ingu vegna með­höndl­unar Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á skýrslu um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum. Þar eru vinnu­brögð hans for­dæmd sem og skýr­ingar hans á ástæðum þess að hún var ekki gerð opin­ber fyrr.

„Þing­flokkur Pírata telur aug­ljóst að fjár­mála­ráð­herra lét per­sónu­lega og póli­tíska hags­muni sína ganga framar hags­munum almenn­ings við ákvörðun sína um að birta ekki umrædda skýrslu þegar hann fékk hana afhenta. Í ljósi þess að fjár­mála­ráð­herra er meðal þeirra Íslend­inga sem átt hefur félag á aflands­svæði var hann einnig með öllu van­hæfur til að taka ákvörðun um tíma­setn­ingu birt­ingar skýrsl­unnar, hvað þá að fresta henni um tæpa fjóra mán­uði frá því henni var skilað,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

„Ofan á þetta bæt­ist að ráð­herra sagði almenn­ingi ósatt um þetta mál, aðspurður í fréttum Rík­is­út­varps­ins. Fyrir liggur að skýrsl­unni var skilað til ráðu­neytis hans þann 13. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og var ráð­herra sér­staka kynnt efni hennar þann 5. októ­ber, rúmri viku áður en þingi var slitið fyrir kosn­ingar. Ráðherra getur vart borið fyrir sig minnis­glöpum í þessu sam­hengi, þar sem hann svar­aði sjálfur óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn um málið á Alþingi þann 10. októ­ber. Þar full­yrti hann að umrædd skýrsla yrði birt á næstu dögum, vit­andi vel að skýrslan væri til­búin til birt­ingar. Þetta þýðir að ráð­herra getur ekki hafa verið það óljóst, aðspurður af frétta­stofu Rúv, hvort þingi hafi verið slitið eða ekki þegar skýrslan var til­búin.“

Þing­flokkur Pírata krefst þess að málið verði tekið fyrir í efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis áður en ný rík­is­stjórn tekur form­lega við, svo Bjarni Bene­dikts­son gegni enn stöðu fjár­mála­ráð­herra þegar hann svarar fyrir vinnu­brögð sín. „Það mundi veikja stöðu þings­ins, sem fer með eft­ir­lits­hlut­verk gagn­vart ráð­herra, að þurfa mögu­lega að yfir­heyra nýjan for­sæt­is­ráð­herra vegna verka sem ekki lengur heyra undir hans lög­form­legu ábyrgð,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. 

Þá er minnt á erindi sem Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, sendi umboðs­manni Alþingis í dag og umboðs­maður hvattur til að taka málið fyrir. 

Loks segir í yfir­lýs­ing­unni:

„Í sið­uðum lýð­ræð­is­ríkjum er það kallað spill­ing þegar stjórn­mála­menn beita opin­beru emb­ætti í þágu per­sónu­legra og póli­tískra hags­muna. Þá er það kallað lygi, þegar menn fara vís­vit­andi með rangt mál. Nú reynir á nýtt þing að sýna að tal okkar allra um ný vinnu­brögð og ábyrgð í stjórn­málum sé ekki orðin tóm.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár