Ráðuneytisstjóri sakaður um „beinar hótanir“ gegn fleiri en einum þingmanni

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar sakar Guðmund Árnason ráðu­neyt­is­stjóra um „beinar hót­anir“ gegn þing­mönnum. Guð­mundur hringdi í einn þing­mann nefnd­ar­innar og sagð­ist íhuga að leita réttar síns vegna skýrslu Vigdísar Hauks­dóttur þar sem meðal ann­ars er gefið í skyn að hann hafi viljað „frið­þægja kröfu­hafa“ á kostnað íslenskra hags­muna.

Ráðuneytisstjóri sakaður um „beinar hótanir“ gegn fleiri en einum þingmanni

Fimm þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins í fjár­laga­nefnd hafa sam­þykkt bókun þar sem þeir full­yrða að fleiri en einn stjórn­ar­þing­maður úr nefnd­inni hafi fengið „beinar hót­anir um æru- og eigna­missi“ vegna skjals Vigdísar Hauks­dóttur um end­ur­reisn íslenska banka­kerf­is­ins í tíð vinstri­st­jórn­ar­innar. Í skjal­inu eru settar fram alvar­legar ásak­anir á hendur emb­ætt­is­mönnum sem ekki fengu tæki­færi til að bera hönd fyrir höfuð sér.

Haraldur Bene­dikts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur sent út yfir­lýs­ingu þar sem hann stað­festir að emb­ætt­is­mað­ur­inn sem vísað er til í bók­un­inni sé Guð­mundur Árnason, ráðu­neyt­is­stjóri fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Í sam­tali við Eyjuna seg­ist Haraldur þó ekki vita til þess að aðrir nefnd­ar­menn hafi fengið hót­anir. Samt hefur Haraldur, ásamt þeim Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, Ásmundi Einari Daðasyni, Haraldi Bene­dikts­syni, Páli Jóhanni Pálssyni og Valgerði Gunn­ars­dóttur, sam­þykkt umrædda bókun þar sem fram kemur að þing­menn, í fleir­tölu, hafi fengið „beinar hót­anir“ frá emb­ætt­is­mann­inum. 

Guð­mundur hefur greint frá sam­tali sínu við Harald í svari við fyr­ir­spurn Rík­is­út­varps­ins um málið og full­yrðir að hann hafi ekki átt nein önnur sam­töl við þing­menn um málið. „Í því sam­tali tjáði ég honum þá skoðun mína og fleiri að ásak­anir í skýrslu sem að sögn nýtur stuðn­ings meiri­hluta nefnd­ar­innar, þar á meðal hans, feli í sér rætnar og alvar­legar ásak­anir á hendur þeim sem komu að samn­ingum milli gömlu og nýju bank­anna af hálfu rík­is­ins. Ég vildi ganga úr skugga um að hann átt­aði sig á alvar­leika slíkra ásak­ana og að við áskildum okkur rétt til að láta reyna á per­sónu­lega ábyrgð þeirra sem slíku héldu fram fyrir dóm­stólum, enda æra okkar og starfs­heiður að veði,“ skrifar Guð­mundur. 

Skýrslan um end­ur­reisn íslenska banka­kerf­is­ins var upp­haf­lega kynnt sem „skýrsla meiri­hluta fjár­laga­nefndar“ á blaða­manna­fundi Vigdísar Hauks­dóttur og Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar í síð­ustu viku. Síðar kom í ljós að skjalið hafði aldrei verið afgreitt út úr fjár­laga­nefnd.

Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, tjáði sig um málið í þing­inu á mánu­dag­inn og sagði: „Þar er afstaða for­seta að sam­an­tekt sú sem kynnt var í fjár­laga­nefnd og með frétta­mönnum í nafni meiri hluta fjár­laga­nefndar um einka­væð­ingu bank­anna hina síð­ari sé ekki skýrsla í skiln­ingi þing­skapa, enda hefur sam­an­tektin ekki hlotið form­lega með­ferð í fjár­laga­nefnd í sam­ræmi við ákvæði þing­skapa.“ Í dag er skjalið aðeins kallað „skýrsla Vigdísar Hauks­dóttur“. 

Á meðal þess sem vakið hefur athygli í skýrsl­unni er þýð­ing á eft­ir­far­andi ummælum Guð­mundar Árna­sonar: “The state wants to app­e­ase the creditors to the extent possi­ble.“ Þetta er þýtt sem: „Ríkið vill frið­þægja kröfu­hafa eins og mögu­legt er.“ Eiríkur Rögn­valds­son, pró­fessor í íslenskri mál­fræði við Háskóla Íslands, furðar sig á þýð­ing­unni á Facebook-síðu sinni. „Nú merkir frið­þægja skv. orða­bókum ‘bæta fyrir’ sem er greini­lega ekki sú merk­ing sem orðið á að hafa þarna. Þar að auki er sögnin venju­lega notuð í sam­band­inu „frið­þægja fyrir“ en ekki látin stjórna falli,“ skrifar Eiríkur sem trúir því varla að lög­giltir skjala­þýð­endur hafi komið að verk­inu.

Í yfir­lýs­ingu sinni um sam­skiptin við ráðu­neyt­is­stjór­ann seg­ist Haraldur Bene­dikts­son hafa leitað til umboðs­manns Alþing­is eft­ir leið­bein­ing­um vegna sím­tals­ins en jafn­framt upp­lýst for­seta Alþing­is um efni þess og sent fjár­mála­ráð­herra form­legt kvört­un­ar­bréf. „En skila­boð ráðu­neyt­is­stjór­ans voru skýr. Ætlun hans um að draga til ábyrgðar þá þing­menn sem tækju þátt í af­greiðslu skýrsl­unn­ar var aug­ljós með beinni hót­un um að þeir skyldu þola æru- og eignam­issi. Sím­tal ráðu­neyt­is­stjór­ans og sam­skipti hans við mig sem alþing­is­mann og full­trúa í fjár­laga­nefnd, er óvið­eig­andi og hót­un hans í minn garð og ann­arra grafal­var­leg,“ skrifar Haraldur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnsýsla

Umboðsmaður taldi forræðið liggja hjá stjórnvaldinu en ekki ríkislögmanni
FréttirStjórnsýsla

Umboðs­maður taldi for­ræðið liggja hjá stjórn­vald­inu en ekki rík­is­lög­manni

Ákvörð­un­ar­vald um hvort bóta­skylda sé við­ur­kennd liggur hjá því stjórn­valdi sem bóta­kröfu er beint að og stjórn­völd hafa for­ræði á kröfu­gerð, rök­semdum og ágrein­ings­at­riðum þegar mál fara fyrir dóm­stóla. Þetta er afstaða umboðs­manns Alþingis sam­kvæmt ábend­inga­bréfi sem hann sendi heil­brigð­is­ráð­herra árið 2014, en for­sæt­is­ráðu­neytið gaf út yfir­lýs­ingu á föstu­dag þar sem fram kom að rík­is­lög­maður hefði „almennt for­ræði á kröfu­gerð og fram­setn­ingu hennar“.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár