Hannes vill banna blæjur

Einn þekkt­asti tals­maður frjáls­hyggju á Íslandi er hlynntur blæju­banni og telur það þjóna almanna­hags­munum.

Hannes vill banna blæjur

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands og einn þekkt­asti tals­maður íhalds­samrar frjáls­hyggju á Íslandi, vill að konum sé bannað að bera blæjur.

Frá þessu greinir hann á Facebook-síðu sinni. „Auðvitað á ekki að banna konum að bera blæjur, af því að þær séu trú­ar­tákn. Það á að banna þeim það, af því að menn eiga ekki að fá að dul­búa sig á almanna­færi, því að þá geta þeir kom­ist undan ábyrgð á verkum sínum,“ skrifar pró­fess­or­inn. 


Tilefni ummæl­anna er frétt Mbl.is um að Evr­ópu­dóm­stóll­inn telji að brotið hafi verið gegn reglu­gerð ESB um bann við mis­munun á grund­velli trú­ar­bragða þegar franskur hönn­un­ar­verk­fræð­ing­ur var rek­inn úr starfi fyr­ir að bera blæju að ís­lömsk­um sið.

Áður hefur Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu, sem heyrir undir Evr­ópu­ráðið, kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að búrku­bann í Frakk­landi feli ekki í sér brot gegn mann­rétt­inda­sátt­mál­anum. MDE taldi bannið rétt­læt­an­legt á grund­velli örygg­is­sjón­ar­miða; stefnt gæti öryggi almenn­ings í hættu að þekkja ekki almenni­lega ein­stak­linga sem hylja and­lit sitt á almanna­færi.

Hannes Hólm­steinn tekur fram að honum finn­ist eðli­legt að vinnu­veit­endur geti sett ákveðnar reglur um klæða­burð starfs­fólks, jafn­vel reglur sem úti­loki blæjur. „Raunar setja líka veit­inga­staðir fastar reglur um klæða­burð. Og kirkjur: í suð­rænum löndum mega menn ekki fara inn í kirkju í stutt­buxum og sand­ölum. Ég sé ekk­ert að slíkum reglum,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Trúmál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár