Halldór Bragason segist orkulaus eftir deilur við lögreglumann

Tón­list­ar­mað­ur­inn hefur fengið afsök­un­ar­beiðni frá lög­regl­unni. Hann seg­ist vera orku­laus eftir að hann birti mynd­band af lög­reglu­manni sem bann­aði honum að taka sig upp á mynd­bandi.

Halldór Bragason segist orkulaus eftir deilur við lögreglumann

Halldór Bragason tón­list­ar­maður fékk rétt í þessu afsök­un­ar­beiðni frá lög­regl­unni, en skömmu áður hafði hann sagt í sam­tali við Stundina vera orð­inn orku­laus eftir deil­urnar.

„Þetta veldur orku­leysi og ég hef ekki tíma í þetta meira,“ sagði Halldór. „Það hefur allt komið fram eins og fljót sem rennur til sjávar. Lög­reglan og borgin laga þetta. Verum bjart­sýn og horfum til fram­tíðar. En það er ekki nóg að þurfa upp­lifa stans­lausan „rútugný“ en að þurfa líka að fá leið­indi frá lög­reglu. Ég reikna með afsök­un­ar­beiðni frá þessum manni.“

Um helg­ina birti Halldór mynd­band á Facebook-síðu sinni, af því þegar rúta er við það að bakka á hús hans. Þar sést hvar lög­reglu­maður bannar honum að taka upp mynd­band. Hann segir að mynd­bandið tali sínu máli. 

Halldór seg­ist hafa heyrt frá lög­regl­unni að henni þyki fram­ferði lög­reglu­manns­ins ekki til sóma. „Heyrði frá lög­regl­unni. Þeim þykir þetta miður og taka örugg­lega á þessu, enda hef ég átt far­sælt sam­starf við þá til margra ára . Þetta atvik dæmir sig sjálft,“ segir Halldór.

Hann hefur áður sagt að hann sé orðin lang­þreyttur á „rútu­þján­ingu íbúa í 101“ og á mynd­bandið rætur sína í þeirri þján­ingu.

Ómar Smári Ármanns­son, yfir­maður umferð­ar­deildar lög­regl­unnar, varð­ist allra fregna þegar leitað eftir við­brögðum hans. Rétt eftir sam­talið var send út þar lög­reglan bað Halldór afsök­unnar. „Í gær barst Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til­kynn­ing um mynd­band sem tekið var upp við útkall lög­reglu vegna rútu sem sat föst í þröngri götu í mið­borg­inni. Í mynd­band­inu sést lög­reglu­maður eiga orða­skipti við þann sem tekur mynd­bandið upp,“ segir í til­kynn­ingu. 

Fyrir vikið líður Halldóri mun betur. „Frábært að fá afsök­un­ar­beiðni frá lög­regl­unni og mér líður miklu betur. stór­mann­legt af lög­regl­unni og þeim er fyr­ir­gefið,“ skrifar Halldór á Facebook-síðu sinni. 

Halldór birti tvö mynd­bönd á Facebook-síðu sinni. Fyrra mynd­bandið sýnir hvernig ferða­mannar­úta er við það að keyra inn á heim­ili Halldórs. Hann sagð­ist hafa tekið mynd­bandið ef rútan skyldi rekast á húsið. Seinna mynd­bandið sýnir þó lög­reglu­mann sem var á vett­vangi. Lög­reglu­mað­ur­inn skiptar Halldóri að hætta upp­töku og slær í síma hans. 

 

Posted by Halldor Bragason on Saturday, May 16, 2015

 

 

 
Rútu­þján­ingar íbúa í 101

Rútu­þján­ingar íbúa í 101 halda áfram. Í kvöld þurfti risa­stór rúta að bakka í Þing­holts­stræti frá Banka­stræti alla leið suður á Lauf­ás­veg vegna þess að hún gat hvergi beygt þarna í þröngum götum í 101. Munaði engu að ég fengi rút­una inn um stofu­glugg­ann og tók ég því mynd­band af atvik­inu til að eiga fyrir trygg­inga­fé­lagið ef rútan myndi rekast í heim­ili mitt. Lög­reglan bann­aði mynda­tökur og var mjög ógn­andi við mig reyndi að rífa af mér sím­ann en ég lagði hann niður og hljóð­rit­aði sam­tal við lög­reglu­mann­inn. sem heimt­aði nafn og kenni­tölu sem ég sagði honum ljúf­lega Ég fylgdi fyr­ir­mælum valds­ins í hví­vetna og var staddur inná minni eign­ar­lóð og ekki fyrir neinum og trufl­aði ekki neinn ekki lög­reglu eða aðra. Ég spyr í hvers konar landi búum við? #reykja­vik

Posted by Halldor Bragason on Saturday, May 16, 2015
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár