Söfnuðu yfir milljón fyrir björgunarsveitirnar og lögregluna í nafni Birnu

Skipu­leggj­endur söfn­unar Góðu systur ákváðu að verða við ósk móður Birnu um að styrkja tækja­kaup lög­regl­unnar og björg­un­ar­sveit­anna.

Björgunarsveitarfólk
Björg­un­ar­sveit­ar­fólk Vinnur í sjálf­boða­vinnu til að bjarga öðrum. Mynd: Landsbjörg

Mán­að­ar­lega stendur hópur af konum fyrir góð­gerð­ar­söfnun í gegnum Facebook-hóp­inn Góða systir. Þennan mán­uð­inn er söfn­unin í nafni Birnu Brjáns­dóttur og mun ágóð­inn skipt­ast milli björg­un­ar­sveit­anna og lög­regl­unnar.

„Með hverjum mán­uð­inum safn­ast hærri upp­hæð en þetta er í fyrsta skipti sem við höfum kom­ist upp í eina milljón króna,“ segir Anna Svava Knúts­dóttir, einn skipu­leggj­andi söfn­un­ar­innar, í sam­tali við Stundina. „Í 90% til­fella eru það konur sem styrkja söfn­un­ina og það er alveg ótrú­legt hvað margt smátt getur gefið stórt,“ segir Anna Svava.

„Einu sinni í mán­uði veljum við mál­efni úr þeim fjölda fyr­ir­spurna sem ber­ast okkur á Góða systir e-mailið, godasystir@gmail.com. Markmið með söfn­un­unum hefur alltaf verið að styrkja ein­stak­linga því okkur finnst alltaf verið að safna fyrir góð­gerð­ar­fé­lög eins og Rauða Krossinn eða Unicef. Fyrsta söfn­unin var fyrir Anju Mist sem fædd­ist á viku 25, síðan höfum við til dæmis styrkt öryrkja­konu sem átti ekki fyrir leigu og alls konar fólk sem er að ganga í gegnum erf­iða tíma og hefur ekki sterkt bak­land,“ útskýrir Anna Svava. Þennan mán­uð­inn var þó ákveðið að verða við ósk móður Birnu um að styrkja tækja­kaup lög­regl­unnar og björg­un­ar­sveit­irnar.

Safna í krafti fjöldans

Anna Svava segir verk­efnið hafa byrjað þegar vinnu­fé­lagi hennar Lóa Hlín Hjálmtýs­dóttir sagði: „Vá hvað eru margir í þess­ari grúppu, ef allir myndu leggja 100 kr. á mán­uði gæti safn­ast ótrú­lega mik­ill pen­ingur.“

Flestar sem styrkja söfn­un­ina leggja inn mán­að­ar­legar greiðslur frá 100 kr. upp í 500 kr. og með hverjum mán­uð­inum bæt­ast við ein­stak­lingar sem styrkja. Anna Svava segir tak­markið vera að safna í krafti fjöld­ans þar sem styrkt­ar­að­ilar finna ekki endi­lega fyrir greiðsl­unum.

„Við höfum fengið ein­stak­lega mikil við­brögð þennan mán­uð­inn. Fyrir utan fram­lög frá ein­stak­lingum höfðu þau Hera Hilm­ars­dóttir og Þor­valdur Davíð sam­band við okkur og vildu gefa allan ágóð­ann af einni sýn­ingu sem þau voru með í Iðnú, sýn­ing­unni Andaðu. Sú upp­hæð mun svo bæt­ast við það sem þegar er komið,“ segir Anna Svava.

„Við sem stöndum að söfn­un­inni erum hópur af konum sem þekkj­umst ekki neitt “

„Við, sem stöndum að söfn­un­inni, erum hópur af konum sem þekkj­umst ekki neitt og höfum því engra hags­muna að gæta. Við komumst upp­haf­lega í sam­band á Facebook hópnum Góða systir og höfum bara sam­skipti í gegnum netið,“ segir Anna Svava og bætir við, „kannski munum við hitt­ast einn dag­inn og fara á kaffi­hús.“

Hægt er að styrkja söfn­un­in­ina með því að leggja inn á reikn­ing félags­ins eða greiða með Kass.

Reikn­ings­upp­lýs­ingar: 0513-14-405972 kt. 580116-1590

Til að greiða með Kass: goda­systir

IBAN: IS090513144059725801161590

Swift: GLITISRE

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár