Guðni Th. afhjúpaður í frídreifðu eintaki Morgunblaðsins

Morg­un­blað­inu er frídreift inn á heim­ili lands­manna í dag með frétt um að Guðni Th. Jóhann­es­son hafi sagt ósatt í sjón­varp­s­kapp­ræðum með Davíð Oddssyni, rit­stjóra blaðs­ins og mót­fram­bjóð­anda hans.

Guðni Th. afhjúpaður í frídreifðu eintaki Morgunblaðsins

Fjallað er um gömul ummæli Guðna Th. Jóhann­es­sonar sagn­fræð­ings í Morg­un­blað­inu í dag, sem frídreift er á heim­ili lands­manna. Í frétt á fyrstu opnu blaðs­ins og í nafn­lausa skoð­ana­dálknum Stak­steinum er greint frá því að Guðni hafi notað orða­lagið „fávís lýð­ur­inn“ í fyr­ir­lestri um Þorska­stríðin árið 2013 í Háskól­anum á Bifröst í Borg­ar­firði og afneitað síðan orð­unum í sjón­varp­s­kapp­ræðum með Davíð Oddssyni, rit­stjóra blaðs­ins og nú for­seta­fram­bjóð­anda.

„Rangar“ sameiginlegar minningar

Ummæli Guðna sem um ræðir snúa að því að goðsagnir mynd­ist meðal þjóða um afrek þeirra, knúnar áfram af þjóð­ern­is­hyggju, sem ekki séu endi­lega rétt­mætar eða spegli raun­veru­lega atburða­rás. 

„... Jess, Íslandi allt og spurn­ingin vaknar: Er fávís lýð­ur­inn aftur að pródúsera „rangar“ sam­eig­in­legar minn­ingar? Og kemur enn til kasta okkar sagn­fræð­ing­anna því því er ekki að leyna í okkar hópi eru þeir til, og kannski er ég þar fram­ar­lega þó ég segi sjálfur frá, sem hafa lýst efa­semdum um þessa sýn en vissu­lega aðrir tekið í sama streng.“

Orðin eru hluti af fyr­ir­lestri Guðna fyrir nem­endur á Bifröst. Mbl.is birti í gær upp­töku af ummæl­unum.

Í sjón­varp­s­kapp­ræðum í sjón­varps­þætt­inum Eyjunni á Stöð 2, sem stýrt er af Birni Inga Hrafns­syni, eig­anda Vef­pressunnar, sótti Davíð harka­lega að Guðna, meðal ann­ars vegna Icesave-máls­ins. Guðni kann­að­ist ekki við að hafa talað um „fávísan lýð“ þegar hann var spurður út í það í þætt­inum og neit­aði því end­ur­tekið.

Langt seilst, segir Guðni

Sama frétt og er birt í frídreifðu ein­taki Morg­un­blaðs­ins var hins vegar sögð í hádeg­inu í gær á Vísi.is. Þar útskýrir Guðni málið með þeim hætti að hann meini ekki með eig­in­legum hætti að fólk sé fávíst: „Ég var að tala um það að stundum hættir fræði­mönnum til að kvarta undan því að fólk taki ekki undir með þeim og not­aði þessa lýs­ingu en það er svo fjarri mér, eins og ég held að allir sann­gjarnir menn hljóti að sjá, að ég hafi þar með verið að segja Íslend­inga fávísan lýð. Ég hef líka talað um fræði­menn í fíla­beinsturni. Þetta eru bara mynd­lík­ingar og langt seilst að bera það upp á mig að mér þyki Íslend­ingar vera fávís lýður. Ég bara skil ekki svona hátta­lag,“ segir Guðni. 

Hann sagði að sjá þyrfti fyr­ir­lest­ur­inn í sam­hengi til að skilja orðin á réttan hátt.

„Allir sann­gjarnir menn hljóta að sjá að ég var ekki að væna Íslend­inga um að vera fávísir heldur var ég að tala um það að það getur verið erfitt fyrir þá sem eru í fræða­rann­sóknum að kynna sínar nið­ur­stöður fyrir almenn­ingi þannig að fólki líki. Það er alltaf smá bil þarna á milli en ég trúi ekki að fólk taki svona orða­lagi bók­staf­lega. Ég hvet fólk til að hlusta á þennan fyr­ir­lestur og lesa allt sem ég hef skrifað og þá sér fólk að það er ekki fótur fyrir því að mér finn­ist Íslend­ingar vera fávís lýður. Mér finnst ansi magnað að þetta sé orðið aðal­at­riði.“

Frétt Morgunblaðsins
Frétt Morg­un­blaðs­ins Í frétt­inni er einnig rætt um hvort Guðni hafi látið efni hverfa af vef­síðu sinni.

Í sumarleyfi frá ritstjórn

Ekki er aðeins fjallað um orð Guðna í frétt á fyrstu opnu, heldur einnig í nafn­lausa skoð­ana­dálknum Stak­steinum. Þá er hann gagn­rýndur í nafn­lausum leið­ara blaðs­ins.

Frétt blaðs­ins um orð Guðna 2013 var birt á mbl.is í morgun, en hún var síðan fjar­lægð.

Davíð Oddsson er í sum­ar­leyfi frá starfi sínu sem rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins í bar­áttu sinni fyrir for­seta­kosn­ing­arnar en hyggst snúa strax aftur, verði hann ekki kjör­inn for­seti 25. júní næst­kom­andi.

Náin tengsl eru milli fram­boðs Davíðs og útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins. Í kosn­ingateymi eru blaða­maður Morg­un­blaðs­ins, Laufey Rún Ket­ils­dóttir, og stjórn­ar­maður í útgáfu­fé­lag­inu Árvakri, Frið­björn Orri Ket­ils­son. Laufey safn­aði meðal ann­ars und­ir­skriftum fyrir fram­boð Davíðs á rit­stjórn­ar­skrif­stofum blaðs­ins.

Aðrir áhrifa­menn tengj­ast fram­boði Davíðs. Ari Edwald, fyrr­ver­andi for­stjóri 365 miðla, og athafna- og sjálf­stæð­is­mað­ur­inn Eyþór Arnalds, sitja báðir í stjórn félags sem heldur utan um fram­boð Davíðs. Þá er Erla Gunn­laugs­dóttir, fjöl­miðla­full­trúi fram­boðs­ins, dóttir full­trúa eins helsta eig­anda Árvakurs, Gunn­laugs Sævars Gunn­laugs­sonar, stjórn­ar­for­manns Ísfélags Vest­manna­eyja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár