Græða fimmtán milljarða - segja upp 86 í láglaunastörfum

HB Grandi hefur hagn­ast um 15 millj­arða króna á þremur árum, en segir upp öllu fisk­verk­un­ar­fólki á Akranesi til að hag­ræða.

Græða fimmtán milljarða - segja upp 86 í láglaunastörfum
Fisk­verkun í Granda Útgerð sem hagn­ast hefur gríð­ar­lega á síð­ustu árum er nú að skera niður í fisk­verk­un­ar­störfum á Akranesi og flytja störf til Reykja­víkur.

HB Grandi, sem græddi 3,5 millj­arða króna í fyrra eftir skatta og afskriftir, hefur sagt upp 86 starfs­mönnum í botn­fisk­vinnslu á Akranesi í hag­ræð­ing­ar­skyni, þrátt fyrir til­raunir bæj­ar­yf­ir­valda til telja stjórn­endum félags­ins hug­hvarf með því að bjóða fram betri hafn­ar­að­stöðu. 

Upp­sagn­irnar eru „gríð­ar­legt högg“ fyrir Akranes, að sögn Vil­hjálms Birg­is­sonar, for­manns Verka­lýðs­fé­lags Akraness. HB í naf­inu HB Grandi stendur fyrir Harald Böðv­ars­son, sem var stórt útgerð­ar­fyr­ir­tæki á Akranesi. Félagið sam­ein­að­ist Granda í Reykja­vík árið 2004 undir því for­orði að fisk­vinnsla héldi áfram á Akranesi. „Það er bara búið að reka okkur öll,“ sagði fisk­vinnslu­konan Elsa Hrönn Gísla­dóttir í sam­tali við Vísi. Starfs­fólk­inu var greint frá því að hugs­an­lega fengi það áfram­hald­andi starf í vinnslu fyr­ir­tæk­is­ins í Reykja­vík. 

Vil­hjálmur Vil­hjálms­son, for­stjóri félags­ins, greindi starfs­mönnum frá lok­un­inni á fundi seinni part­inn í dag. 

Mikill hagnaður

Síðustu þrjú ár hefur HB Grandi hagn­ast um meira en 15 millj­arða króna. 

Árið 2015 hagn­að­ist HB Grandi um 6,5 millj­arða króna og árið 2014 5,6 millj­arða króna eftir skatta og afskriftir. Hagn­að­ur­inn var 5,7 millj­arðar króna árið 2013.

HB Grandi er skráður eig­andi að afla­heim­ildum að and­virði 15,4 millj­örðum króna í bók­haldi félags­ins. Kvóti félags­ins er hins vegar skráður á kaup­virði en ekki mark­aðsvirði í bók­hald­inu.

Félagið greiddi 828 millj­ónir króna í veiði­gjöld árið 2015.

Að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða

Í árs­skýrslu Granda er meðal ann­ars til­greint að það leit­ist við að stýra rekstr­ar­á­hættu sinni, bæði vegna fjár­hags og orð­spors. „Sam­stæðan leit­ast við að stýra rekstr­ar­á­hættu með hag­kvæmum hætti til að forð­ast fjár­hags­legt tap og til að vernda orðstír hennar.“

Fimm af tíu stærstu eig­endum HB Granda eru líf­eyr­is­sjóðir. Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna á 13,2 pró­sent í félag­inu, Gildi líf­eyr­is­sjóður 7 pró­sent, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins á 6 pró­sent fyrir A-deild og 2,2 pró­sent fyrir B-deild og Söfn­un­ar­sjóður líf­eyr­is­rétt­inda 2,1 pró­sent. 

Útgerð Haraldar Böðv­ars­sonar hefur átt 120 ára starfs­tíma á Akranesi, en hann hóf útgerð sína 17 ára gam­all á sexær­ingnum Helgu Maríu og byggði upp elsta starf­andi útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins á Akranesi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár