Gott að geta rætt um dauðann

Séra Bragi Skúlason, sjúkra­hús­prestur á Land­spít­al­anum, veitir þjón­ustu þeim sem grein­ast með lífs­hættu­lega sjúk­dóma og hefur verið við­staddur mörg and­látin. Hann segir að dauð­vona fólk tak­ist á við erf­iða, til­finn­inga­lega líðan - fólk getur verið ósátt, það getur fundið fyrir reiði og ótta og verið að takast á við ákveðin upp­gjör. „Því finnst eins og lífið sé að hlaupa frá því og að það hafi ekki náð að gera það sem það ætl­aði sér í líf­inu. Allt þetta kemur inn á borð hjá mér. Það sama er að segja um trú­ar­leg spurs­mál - hvernig er dauð­inn, hvert við­kom­andi fer þegar hann deyr og sumir velta fyrir sér hvort von sé um að annað líf taki við þegar þeir kveðja.“

Gott að geta rætt um dauðann
Séra Bragi Skúlason „Fólk á ekki auð­velt með að tala um dauð­ann. Ég gerði könnun á kynja­mun varð­andi þetta og þar kemur í ljós að konur eru miklu opn­ari fyrir umræðu um eigin dauða heldur en karlar.“ Mynd: Kristinn Magnússon / Stundin

Séra Bragi Skúlason segir að við­brögð sjúk­linga við þeim upp­lýs­ingum að þeir séu dauð­vona séu mis­jöfn og nefnir hann mun á konum og körlum.

„Fólk á ekki auð­velt með að tala um dauð­ann. Ég gerði könnun á kynja­mun varð­andi þetta og þar kemur í ljós að konur eru miklu opn­ari fyrir umræðu um eigin dauða heldur en karlar. Þannig að sú aðstoð sem er í boði fyrir bæði karla og konur gagn­ast körlunum betur eða meira vegna þess að þeir hafa sig minna í frammi. Það sem ein­kennir marga af körlunum er að þeir ætla ekki að íþyngja öðrum með sinni eigin erf­iðu líðan. Það merkir hins vegar ekki að þeir séu ekki líka að velta fyrir sér svip­uðum hlutum og kon­urnar. Sumir mæta þessu með afneitun; þeir takast í raun­inni ekki á við þetta en undir lokin stendur við­kom­andi frammi fyrir því hvernig hann ætlar í raun­inni að kveðja fólkið sitt. 

Sumir geta ekki tek­ist á við þetta með fjöl­skyldu sinni þegar að því kemur. Sumir velja á takast á við þetta með mér sem sjúkra­hús­presti eða ein­hverjum öðrum í hópi fag­fólks. Margir deyja hins vegar í ákveð­inni þögn um þessa hluti en það er mik­ill kostur að geta rætt um dauð­ann áður en að honum kemur. Ávinn­ingur af slíku sam­tali getur verið mjög mik­ill. 

Í fyrsta lagi er ávinn­ing­ur­inn fyrir þann sem er í raun og veru að kveðja lífið; hann fær áheyrn og skiln­ing á að takast á við margar af þeim spurn­ingum sem hann vill spyrja. 

Í öðru lagi er ávinn­ing­ur­inn fyrir aðstand­endur; það er ef umræðan á sér stað áður en ein­stak­ling­ur­inn deyr þá getur fjöl­skyldan að sumu leyti gert upp og rætt ákveðna hluti sem erfitt er að ræða um eftir á. 

Í þriðja lagi er ávinn­ing­ur­inn fyrir fag­fólkið; við höfum okkur í

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár