Glímdi við átröskun og gagnrýnir umræðu um fegurðarsamkeppni: Ég var mjó en ekki heilbrigð

Gunnlöð Jóna Rún­ars­dóttir segir feg­urð­ar­staðla sam­fé­lags­ins skað­lega unga stúlkum. Sjálf var hún komin með nei­kvæða mynd af lík­am­anum strax í æsku og með átröskun á ung­lings­árum. Sem módel þjáð­ist hún af rang­hug­myndum um lík­ama sinn og feg­urð og bendir á að heil­brigði hald­ist ekki í hendur við hold­ar­far. Hún vinnur í að snúa eigin við­horfum meðal ann­ars í gegnum ljós­myndir af húð­slitum sínum sem hún setur í sam­hengi við nátt­úr­una.

Glímdi við átröskun og gagnrýnir umræðu um fegurðarsamkeppni: Ég var mjó en ekki heilbrigð

„Ég var mjó en ekki heil­brigð. Ég vildi verða fal­leg en fannst ég aldrei nógu flott, nógu grönn, nógu fal­leg,“ segir Gunnlöð Jóna Rún­ars­dóttir, sem glímdi við átröskun og skrif­aði um reynslu sína í kjöl­far umræðu sem skap­að­ist vegna þess að Ungfrú Ísland, Arna Ýr Jóns­dóttir, ákvað að hætt þátt­töku í feg­urð­ar­sam­keppn­inni Miss Grand International eftir að eig­and­inn sagði að hún væri of feit og ætti ekki að borða morg­un­mat heldur aðeins salat í hádeg­is­mat og drekka vatn þess utan.

Mikið hefur rætt um ákvörðun hennar og Arna Ýr hefur hlotið mikið lof fyrir. Gunnlöð tekur undir að Arna Ýr hafi sýnt kjark í erf­iðum aðstæðum en seg­ist engu að síður vera hugsi yfir umræð­unni, sem sé oft á þeim nótum að Arna Ýr sé ekki feit heldur gull­fal­leg og heil­brigð. Hún bendir á að grannt hold­ar­far sé ekki ávísun á heil­brigði, eins og hún þekkir af eigin raun. „Ég borð­aði ekki heilu dag­anna og ef ég borð­aði lét ég sjálfa mig kasta upp. Mér leið illa and­lega og lík­am­lega.“

Að sama skapi sé það að vera feitur sé ekki and­stæða feg­urðar eða heil­brigðis. „Það er þessi umræða sem mér finnst svo skrýtin og röng. Við erum stans­laust mötuð á því að fita sé vond, ljót og óheil­brigð.“

Hætti að borða

Gunnlöð starf­aði sjálf sem módel á sínum tíma, bæði hér á Íslandi og í Kólumbíu. Allt frá unga aldrei hafði hún hins vegar þróað með sér rang­hug­myndir um lík­ama sinn og feg­urð. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár