Gengið á hlutafé hjá Kjarnanum

Kjarninn tap­aði um átta millj­ónum króna í fyrra. Fram­kvæmda­stjóri Kjarnans, Hjalti Harð­ar­son, segir tapið innan áætl­unar og sér fram á sjálf­bærni innan skamms.

Gengið á hlutafé hjá Kjarnanum

Útgáfu­fé­lag fjöl­mið­ils­ins Kjarnans, Kjarninn miðlar ehf, tap­aði rúm­lega 8 millj­ónum króna í fyrra, sam­kvæmt nýbirtum árs­reikn­ingi. 

Það er tals­verður munur sam­an­borið við árið áður þegar hagn­aður fjöl­mið­ils­ins nam um 300 þús­und krónum. Þetta kann þó að skýr­ast af því að Kjarninn hóf göngu sína 22. ágúst 2013.

Samkvæmt árs­reikn­ingi voru árs­verk í fyrra sex og má því ætla að fast­ráðnir starfs­menn hafi verið jafn­margir. Kjarninn var stofn­aður af Þórði Snæ Júl­í­us­syni, Magnúsi Hall­dórs­syni, Ægi Þór Eysteins­syni, Hjalta Harð­ar­syni og Gísla Jóhanni Eysteins­syni. Allir eiga þeir hlut í útgáfu­fé­lag­inu en Þórður Snær er rit­stjóri mið­ils­ins meðan Hjalti er fram­kvæmda­stjóri. Samkvæmt heima­síðu fjöl­mið­ils­ins eru starfs­menn fyrr­nefndir Þórður, Ægir, Hjalti og Magnús auk Þórunnar Elísa­betar Boga­dóttur og Birgis Þórs Harð­ar­sonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár