„Geir sýndi takmarkaðan áhuga“

Robert Aliber hag­fræð­ingur hélt fyr­ir­lestur á Þjóð­minja­safn­inu í dag. Hann var­aði við hrun­inu í maí árið 2008. Geir Haarde vissi af hætt­unni en vildi frekar spjalla við Aliber um sam­eig­in­lega kunn­ingja heldur en banka­kerfið.

„Geir sýndi takmarkaðan áhuga“

Robert Z. Aliber, pró­fessor í alþjóða­hag­fræði og fjár­málum við Háskól­ann í Chicago, hélt fyr­ir­lestur í fyr­ir­lestr­ar­sal Þjóð­minja­safns­ins í dag undir yfir­skrift­inni Evra eða króna: Hvað hefur fjár­málakreppan kennt okkur um geng­is­fyr­ir­komu­lag? Ræddi hann um pen­inga­mál í stóru sam­hengi, flæði fjár­magns milli landa og tengsl þess við bólu­myndun í hag­kerfum. 

Aliber hefur sýnt efna­hags­málum á Íslandi tals­verðan áhuga und­an­farin ár og raunar leikur hann áhuga­verða rullu í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um banka­hrunið. Sagan af því þegar hann kom hingað til lands árið 2008 er ágætis vitn­is­burður um með­virkni og and­vara­leysi í aðdrag­anda hruns­ins. 

Gylfi Zoëga, hag­fræð­ingur við Háskóla Íslands, stóð fyrir því að Aliber kom hingað til lands aðeins örfáum mán­uðum fyrir banka­hrun og flutti erindi í háskól­anum þar sem hann gagn­rýndi stefnu rík­is­stjórn­ar­innar í efna­hags­málum og spáði fyrir um hrun íslenska efna­hags­kerf­is­ins. Aliber hafði áður hitt Gylfa í júní 2007 og dregið upp dökka mynd af fram­tíð fjár­mála­kerf­is­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármálahrunið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár