Geir Haarde flytur erindi hjá umdeildri hugveitu

Sendi­herra Íslands í Banda­ríkj­unum fundar með íhalds­sam­tök­unum Heritage Foundation. Samtökin beita sér fyrir mark­aðs­frelsi og gegn rík­is­af­skiptum. Þau þiggja fé frá olíu-, tóbaks- og vopna­fyr­ir­tækjum og berj­ast gegn aðgerðum sem miða að því að stemma stigu við útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Geir Haarde flytur erindi hjá umdeildri hugveitu

Geir H. Haarde, sendi­herra Íslands í Banda­ríkj­unum, heldur erindi á sam­komu hug­veit­unnar Heritage Foundation í Washington þann 18. ágúst næst­kom­andi. Á fund­inum verður fjallað um tæki­færi Banda­ríkj­anna á Norð­ur­slóðum, stefnu­mörkun og starf­semi á svæð­inu og mögu­leika ann­arra ríkja, einkum sam­starfs­að­ila Banda­ríkj­anna í Norð­ur­skauts­ráð­inu.

Á fund­inum, sem hald­inn er í fyr­ir­lestra­sal Heritage-hug­veit­unnar, taka til máls þau Robert J. Papp, norð­ur­slóða­full­trúi utan­rík­is­ráðu­neytis Banda­ríkj­anna, Isaac Edwards, sem starfar fyrir banda­ríska þing­nefnd um auð­linda- og orku­mál og Luke Coffey frá Frels­is­mið­stöð Margaret Thatcher. James E. Dean hjá Heritage-hug­veit­unni stýrir fund­inum sem James Jay Carafon boðar til, en hann er fræði­maður hjá Heritage og jafn­framt vara­for­seti stofn­un­ar­innar Shelby Cullom Davis Institute for National Security and Foreign Policy.

Heritage Foundation er ein áhrifa­mesta hug­veita Banda­ríkj­anna og ver á ári hverju gríð­ar­legum fjár­hæðum í boðun mark­aðs­frelsis, lág­marks­rík­is­af­skipta, hefð­bund­inna fjöl­skyldu­gilda og sterkra her­varna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár