Gefandi sjálfboðaliðastarf

Mjöll Þór­ar­ins­dóttir hefur um ára­bil starfað sem sjálf­boða­liði hjá Hjálp­ar­starfi kirkj­unnar. Hún mætir einu sinni í viku, nema yfir sum­ar­mán­uð­ina, og er aðal­lega í því að taka á móti fata­gjöfum sem þarf að flokka. „Það er ekk­ert út í blá­inn að sælla sé að gefa en að þiggja,“ segir hún. „Ég sé það betur hvað maður hefur það gott og hvað sumir eiga erfitt.“

Gefandi sjálfboðaliðastarf
Mjöll Þór­ar­ins­dóttir Sjálf­boða­liða­starfið skiptir miklu máli fyrir fólk sem leitar til Hjálp­ar­starfs kirkj­unnar. Mjöll segir starfið gef­andi, því henni líði vel þegar hún veit að hún hefur glatt aðra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Mjöll Þór­ar­ins­dóttir hefur í mörg ár unnið ýmiss konar störf fyrir Þjóð­kirkj­una. Hún var í mörg ár í barna­starf­inu í Breið­holts­kirkju og síðar Linda­kirkju auk þess sem hún hefur séð um starf eldri borg­ara í Hall­gríms­kirkju í nokkur ár.

Mjöll hefur unnið sem sjálf­boða­liði hjá Hjálp­ar­starfi kirkj­unnar frá árinu 2009 og mætir einu sinni í viku. Á heima­síðu Hjálp­ar­starfs kirkj­unnar kemur meðal ann­ars fram að hlut­verk þess sé að hafa for­göngu um og sam­hæfa mann­úðar- og hjálp­ar­starf íslensku þjóð­kirkj­unnar inn­an­lands sem utan og að hjálp­ar­starfið vinni óháð og sjálf­stætt í þágu þeirra sem líða fátækt og órétt­læti. „Við hjálpum til sjálfs­hjálpar og tölum máli fátækra,“ segir á síð­unni.

Verkefni sjálf­boða­liða eru fjöl­breytt. Nefna má sem dæmi að taka þarf á móti fötum og flokka þau, brjóta saman og raða í hillur. Stundum þarf að flokka leik­föng og setja þau í hillur. Frá októ­ber og fram yfir ára­mót er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár