Gallharður þjóðernissinni leiðir lista Flokks fólksins í Reykjavík

Magnús Þór Haf­steins­son var rek­inn af Skessu­horni í kjöl­far þess að kvartað var undan hegðun hans á slys­stað. Hann var þing­flokks­for­maður Frjáls­lynda flokks­ins, barð­ist gegn „flæði erlendra nýbúa til Íslands“ og býður sig nú fram fyrir Flokk fólks­ins.

Gallharður þjóðernissinni leiðir lista Flokks fólksins í Reykjavík

Magnús Þór Haf­steins­son, rit­stjóri, rit­höf­undur og fyrr­ver­andi þing­maður Frjáls­lynda flokks­ins skipar odd­vita­sæti á fram­boðs­lista Flokks fólks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem flokk­ur­inn sendi út í dag. 

Magnús Þór var þing­flokks­for­maður Frjáls­lynda flokks­ins á árunum 2003 til 2007 og vakti meðal ann­ars athygli fyrir þing­ræður og grein­ar­skrif um að tak­marka ætti frjálst flæði launa­fólks frá nýjum ríkjum EES og „stýra flæði erlendra nýbúa til lands­ins“. Hann rataði svo í frétt­irnar árið 2008 þegar hann lagð­ist gegn því að Akra­nes­bær tæki á móti þrjá­tíu palest­ínskum flótta­mönnum. Nýlega þýddi hann svo bók­ina „Þjóð­ar­plágan íslam“ eftir Hege Storhaug, norska bar­áttu­konu gegn múslimum sem gagn­rýnd hefur verið fyrir að ala á hatri gegn inn­flytj­endum.  

Í frétta­til­kynn­ing­unni frá Flokki fólks­ins eru eft­ir­far­andi orð höfð eftir Magnúsi Þór: „Ég tel það mik­inn heiður að vera boðið að leiða lista Fólks flokks­ins í Reykja­vík norður. Flokkur fólks­ins berst fyrir göf­ugum mál­stað sem er að rétta hlut þeirra verst settu í sam­fé­lag­inu. Ég hef hrif­ist af ein­urð og festu Ingu Sælands for­manns Flokks fólks­ins. Hún er sú rödd sem alþýða þessa lands hefur beðið eftir að heyra frá hruni. Inga Sæland verður að kom­ast á þing.” Þá kemur fram að und­an­farin ár hafi hann sinnt bóka­skrifum, hval­veiðum, blaða­mennsku og rit­stjórn. 

Stundin greindi frá því í vor að Magnúsi hefði verið sagt upp störfum hjá hér­aðs­frétta­blað­inu Skessu­horni dag­inn eftir að banaslys varð í höfn­inni í Ólafsvík í febr­úar á þessu ári. Á rýni­fundi vegna slyss­ins ákváðu við­bragðs­að­ilar að koma á fram­færi form­legri kvörtun vegna hegð­unar Magnúsar Þórs á slys­stað. Stundin hefur fengið stað­fest að yfir­læknir í Ólafsvík tók að sér að kvarta til rit­stjóra og var Magnús Þór lát­inn taka pok­ann sinn í kjöl­farið. Magnús Magn­ús­son, rit­stjóri Skessu­horns, stað­festi í sam­tali við Stundina að Magnúsi Þór hafi verið sagt upp störfum eftir atvikið, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. 

Eftir þetta réði Vef­pressan, útgáfu­fé­lag Björns Inga Hrafns­sonar, Magnús Þór sem rit­stjóra blaðs­ins Vest­ur­land sem dreift er frítt inn á öll heim­ili og fyr­ir­tæki á Vest­ur­landi, í Kjós og á Kjal­ar­nesi tvisvar í mán­uði. Nú er hann geng­inn til liðs við Flokk fólks­ins og gefur kost á sér sem odd­viti á fram­boðs­list­anum í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár