Gagnrýnir FME harðlega: „Hvernig geturðu dælt peningum út úr bótasjóðunum áður en lögin taka gildi?“

Fram­kvæmda­stjóri félags Íslenskra bif­reiða­eig­enda, Runólfur Ólafsson, hefur gagn­rýnt Fjár­mála­eft­ir­litið vegna aðgerð­ar­leysis gagn­vart trygg­inga­fé­lög­unum og fyr­ir­hug­uðum 8,5 millj­arða króna arð­greiðslum þeirra. FME segir að arð­greiðsl­urnar brjóti ekki gegn lögum.

Gagnrýnir FME harðlega: „Hvernig geturðu dælt peningum út úr bótasjóðunum áður en lögin taka gildi?“
Telja arð­greiðsl­urnar ekki laga­brot FME segir að arð­greiðsl­urnar trygg­ing­ar­fé­lag­anna séu ekki brot á lögum. Unnur Gunn­ars­dóttir er for­stjóri FME.

Runólfur Ólafsson, for­maður Félags íslenskra bif­reiða­eig­enda, segir að Fjár­mála­eft­ir­litið svari ekki ekki þeirri gagn­rýni sem félagið hefur sett fram á það um að stofn­unin sinni ekki eft­ir­lits­hlut­verki sínu með trygg­inga­fé­lög­unum í land­inu. Runólfur hefur gagn­rýnt stóru trygg­inga­fé­lögin þrjú, VÍS, Sjóvá og Trygg­inga­mið­stöð­ina, harð­lega vegna fyr­ir­hug­aðra 8,5 millj­arða króna arð­greiðslna út úr félög­unum á sama tíma og félögin hafa hækkað iðgjöld. VÍS ráð­gerir að greiða mest, eða fimm millj­arða, Sjóvá ætlar að greiða þrjá og Trygg­inga­mið­stöðin hálfan millj­arð. 

Hann hefur auk þess gagn­rýnt Fjár­mála­eft­ir­litið fyrir að sinna ekki eft­ir­lits­hlut­verki með trygg­inga­fé­lög­unum en for­stjóri stofn­un­ar­innar, Unnur Gunn­ars­dóttir, svar­aði þeirri gagn­rýni í gær í við­tali við frétta­stofu RÚV þar sem hún sagði meðal ann­ars: „Ég vil nú vísa því algjör­lega á bug og tel að þarna sé talað af van­þekk­ingu á hlut­verki og starf­semi Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Arðgreiðslur tryggingafélaganna

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár