Hluthafi í VÍS segir fimm milljarða arðgreiðsluna „fullkomlega eðlilega“

Gestur Breið­fjörð Gestsson er hlut­hafi í Óska­beini ehf. sem á ríf­lega 5 pró­senta hlut í Vátrygg­inga­fé­lagi Íslands. Félagið keypti hlut­inn í nóv­em­ber á tæp­lega 1300 millj­ónir og gæti nú fengið tæp­lega 280 millj­óna arð út úr trygg­inga­fé­lag­inu. Gestur segir fjár­festa fara inn í fyr­ir­tæki til að fá greiddan arð.

Hluthafi í VÍS segir fimm milljarða arðgreiðsluna „fullkomlega eðlilega“
1/5 hluti kaup­verðs­ins til baka Gestur Breið­fjörð Gestsson segir arð­greiðsl­una frá VÍS sem stefnt er að vera „full­kom­lega eðli­lega“. Fyr­ir­tæki hans mun fá um 1/5 hluta af kaup­verði bréf­anna í VÍS til baka ef af verður.

Eign­ar­halds­fé­lagið Óskabein ehf., sem meðal ann­ars er í eigu fjár­fest­anna Andra Gunn­ars­sonar og Gests Breið­fjörðs Gests­sonar, gæti fengið um 1/5 af kaup­verði hluta­bréf­anna í Vátrygg­ing­ar­fé­lagi Íslands til baka ef trygg­inga­fé­lagið greiðir út fimm millj­arða króna arð til hlut­hafa þess eins og stjórn fyr­ir­tæk­is­ins ætlar að gera. Óskabein keypti ríf­lega 5,5 pró­senta hlut í VÍS í nóv­em­ber síð­ast­liðnum og var samn­ing­ur­inn um kaupin und­ir­rit­aður í lok októ­ber þegar gengi bréfa í VÍS var hærra en það hafði verið mán­uð­ina á undan og eins mán­uð­ina á eftir. Kaupverð bréf­anna miðað við gengið í VÍS þann 28. októ­ber var rúm­lega 1.261 millj­ónir króna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Arðgreiðslur tryggingafélaganna

Gagnrýnir FME harðlega: „Hvernig geturðu dælt peningum út úr bótasjóðunum áður en lögin taka gildi?“
FréttirArðgreiðslur tryggingafélaganna

Gagn­rýnir FME harð­lega: „Hvernig get­urðu dælt pen­ingum út úr bóta­sjóð­unum áður en lögin taka gildi?“

Fram­kvæmda­stjóri félags Íslenskra bif­reiða­eig­enda, Runólfur Ólafsson, hefur gagn­rýnt Fjár­mála­eft­ir­litið vegna aðgerð­ar­leysis gagn­vart trygg­inga­fé­lög­unum og fyr­ir­hug­uðum 8,5 millj­arða króna arð­greiðslum þeirra. FME segir að arð­greiðsl­urnar brjóti ekki gegn lögum.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár