Fyrrverandi upplýsingafulltrúi Kaupþings: Bankamenn fórnarlömb skipulagðrar aðfarar

Jónas Sig­ur­geirs­son, fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­full­trúi Kaup­þings, segir það hafa verið lág­kúru af Rík­is­sjón­varp­inu að spila upp­töku af Sigurði Ein­ars­syni í Ára­mótaskaup­inu. Jónas vann náið með Sigurði og bar vitni í Al-Thani mál­inu.

Fyrrverandi upplýsingafulltrúi Kaupþings: Bankamenn fórnarlömb skipulagðrar aðfarar

Jónas Sig­ur­geirs­son, fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­full­trúi Kaup­þings, segir að engum ætti að koma á óvart að ákærðir og dæmdir banka­menn sætti sig ekki við þá fang­els­is­dóma og með­ferð sem þeir hafa fengið innan rétt­ar­kerf­is­ins. Í raun hljóti þeir, sem hópur, að kom­ast að þeirri „einu rök­réttu nið­ur­stöðu að þeir séu fórn­ar­lömb skipu­legrar aðfarar“. Þetta skrifar Jónas í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag. Þar segir hann það einnig hafa verið lág­kúru af Rík­is­sjón­varp­inu að leika hljóð­upp­töku af Sigurði Ein­ars­syni, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manni Kaup­þings, í sprelli í Ára­mótaskaup­inu. 

Sem upp­lýs­inga­full­trúi Kaup­þings starf­aði Jónas afar náið Sigurði og bar meðal ann­ars vitni í Al-Thani mál­inu svo­kall­aða. Jónas sendi út frétta­til­kynn­ing­una um að Sheikh Al-Thani hafi eign­ast 5,1 pró­senta hlut í Kaup­þingi.

Sem kunn­ugt er fengu Sigurður Ein­ars­son, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, og Ólafur Ólafsson, sem átti tæp­lega tíu pró­sent hlut í Kaup­þingi fyrir fall hans, allir þunga dóma fyrir mark­aðs­mis­notkun í mál­inu og þeir Sigurður og Hreiðar Már Sig­urðs­son og Magnús Guð­munds­son fyrir umboðs­svik eða hlut­deild í þeim.

Afburðanámsmenn með hreina sakaskrá

Í grein­inni í Frétta­blað­inu rekur Jónas mál Sérstaks sak­sókn­ara sem tengj­ast falli bank­anna. „Þegar hafa 17 banka­menn hlotið fang­els­is­dóma vegna starfa sinna en út frá þeim málum, sem eiga eftir að fara fyrir dóm­stóla, má ætla að yfir 40 banka­menn muni hljóta fang­els­is­dóma. Líklegt er að síð­ustu dóm­arnir falli árin 2019-2020 og síð­ustu afplán­unum ljúki árið 2024, en þá verða 15-16 ár liðin frá falli bank­anna,“ skrifar hann. „Hinir dæmdu eru, utan einnar konu, fjöl­skyldu­menn, karl­menn sem flestir eru fæddir á árunum 1966 til 1976. Margir þeirra voru afburða­náms­menn og sam­merkt er með þeim öllum að þeir voru með hreina saka­skrá þegar meint brot voru framin, flest sömu dag­ana haustið 2008. Að því best er vitað hafa þeir heldur ekki brotið af sér þau átta ár sem eru liðin frá hruni.“

Jónas segir upp­gjörið hér á landi við banka­menn­ina vera ein­stætt á heims­vísu. Engin önnur þjóð hafi tekið jafn hart eða jafn grimmi­lega á eft­ir­málum alþjóð­legu fjár­málakrepp­unnar og Íslend­ingar. 

Gjaldþrot og bókaútgáfa

Jónas lýsti sig gjald­þrota árið 2013 vegna hluta­bréfa­við­skipta sem hann átti við Kaupþing þegar hann starf­aði sem upp­lýs­inga­full­trúi bank­ans. Þurftu kröfu­hafar að afskrifa meira en 240 millj­ónir króna af kröfum sínum í búið en ein­ungis feng­ust ríf­lega sjö millj­ónir upp í kröf­urnar. Jónas er nú fram­kvæmda­stjóri Bóka­fé­lags­ins, for­lags í eigu Baldurs Guð­laugs­sonar, fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóra í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, Kjartans Gunn­ars­sonar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Ármanns Þor­valds­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra dótt­ur­fé­lags Kaup­þings í London, og Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar háskóla­pró­fess­ors. Forlagið hefur gefið út nokkrar bækur tengdar hrun­inu og eft­ir­leik þess. Má þar meðal ann­ars nefna Icesave - afleikur ald­ar­innar? eftir Sigurð Má Jónsson, núver­andi upp­lýs­inga­full­trúa for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, og Andersen skjölin: Rann­sóknir eða ofsóknir? eftir Eggert Skúlason, rit­stjóra DV. Jónas er að auki fram­kvæmda­stjóri Rann­sókn­ar­set­urs um nýsköpun og hag­vöxt (RNH) sem berst fyrir mark­aðs­frelsi og gegn rík­is­af­skiptum. Hannes Hólm­steinn er for­stöðu­maður rann­sókna og rit­stjóri rita frá RNH. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár