Stuðningur við Framsókn helst lítill þrátt fyrir lausn á gjaldeyrishöftum

Píratar mæl­ast enn langstærsti flokk­ur­inn í skoð­ana­könn­unum. Rík­is­stjórnin bætir lít­il­lega við sig fylgi en hefur aðeins 31,9% stuðn­ing.

Kapteinn Pírata
Kapteinn Pírata Birgitta Jóns­dóttir og félagar í Pírötum hafa ein­ungis þrjá þing­menn núna, en mæl­ast með tæp­lega þriðj­ungs­fylgi í könn­unum.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn njóta lít­ils góðs af lausn gjald­eyr­is­hafta, þrátt fyrir orð þing­manna flokks­ins og aðstoð­ar­manns Sig­mundar um að Sig­mundur hafi einn flokks­for­manna lagt áherslu á þá lausn sem fékkst í mál­inu, fyrir síð­ustu kosn­ingar.

Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins minnkar í mæl­ingu mark­aðs­rann­sókna­fyr­ir­tæk­is­ins MMR. Flokk­ur­inn mælist nú með 10 pró­sent fylgi, en mæld­ist síð­ast með 11,3 pró­sent fylgi. Breyt­ingin er þó innan vik­marka.

Skoðanakönnun MMR
Skoð­ana­könnun MMR Hér sést fylgi flokk­anna nú og þróun þess.

Píratar ógn við íslensk gildi

Í við­tali við DV í dag varar Sig­mundur Davíð við afleið­ingum þess fyrir íslensk gildi ef Píratar hljóta kosn­ingu út frá þeim stuðn­ingi sem flokk­ur­inn mælist með í könn­unum. Í nýj­ustu könnun MMR mæl­ast Píratar með 32,7 pró­sent fylgi, en þeir mæld­ustu með 34,5 pró­sent fylgi í síð­ustu könnun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár