„Framsóknarmenn gerðu risastór mistök í dag“

Lík­inga­mál Vigdísar Hauks­dóttur vekur athygli: Segir að „því miður“ sé litla gula hænan enn á lífi.

„Framsóknarmenn gerðu risastór mistök í dag“

Vigdís Hauks­dóttir, þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis, segir að litla gula hænan lifi enn góðu lífi. Þetta mynd­mál er að finna í Facebook-færslu sem hún birti í kvöld en þar gerir hún for­manns­kjörið á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins að umtals­efni. Eins og Stundin greindi frá í dag bar Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra sig­ur­orð af Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­manni flokks­ins til sjö ára.

„Fram­sókn­ar­menn gerðu risa­stór mis­tök í dag á flokks­þing­inu. Það hefur aldrei reynst vel að skreyta sig með stolnum fjöðrum. Litla gula hænan lifir góðu lífi - því miður,“ skrifar Vigdís.

Lík­inga­málið hefur vakið tals­verða athygli á sam­fé­lags­miðlum. Sem kunn­ugt er fjallar umrædd dæmi­saga um litla gula hænu sem biður önnur dýr um hjálp við upp­skeru, þresk­ingu, mölun og bakstur án árang­urs. Dýrin reyn­ast hins vegar viljug til að borða það sem hænan bakar, en hún neitar þeim rétti­lega um það. 

Vigdís Hauks­dóttir tekur undir lof­gjörð Guðfinnu Jóhönnu Guð­munds­dóttur, borg­ar­full­trúa Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina, um Sigmund Davíð.

„Mikið rosa­lega er dap­urt að sjá hvernig fólkið sem virð­ist lifa fyrir það eitt að skíta aðra út til að reyna upp­hefja sig sjálft ræðst á þann ein­stak­ling sem barð­ist fyrir þjóð­ina gegn Icesave, kom skulda­leið­rétt­ing­unni í gegn fyrir heim­ilin í land­inu og tók slag­inn við kröfu­hafa föllnu bank­anna og hafði þannig betur gegn fjár­mála­öfl­unum,“ skrifar Guðfinna og bætir við: „Barátta hans, kjarkur og þor skil­aði nokkur hund­ruð millj­örðum í rík­is­kass­ann og því er nú hægt að bæta kjör fólks­ins í land­inu og m.a. byggja nýjan spít­ala. Kjör fólks­ins í land­inu verða nefni­lega ekki bætt með umræðu­stjór­unum á feis­búkk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár