Framkvæmir tannhvíttun á fermingarbörnum: „Hvorki löglegt né siðferðilega rétt“

Kristín Þór­halls­dóttir aug­lýsir tann­hvíttun þrátt fyrir að hafa ein­ungis diplómu­próf frá snyrti­skóla. Formaður Tann­lækna­fé­lags Íslands for­dæmir „aðgerð­ina“.

Framkvæmir tannhvíttun á fermingarbörnum: „Hvorki löglegt né siðferðilega rétt“
Skjáskot af Facebook-síðu Síða Stjörnu­bros var með 5275 like þegar þetta var skrifað.

Kristín Þór­halls­dóttir stendur fyrir tann­hvíttun á allt að 12 ára börnum í gegnum fyr­ir­tæki sitt Stjörnu­bros. Krístín er í raun algjör­lega ómenntuð til að sinna slíkri aðgerð, en sam­kvæmt kynn­ingu sem birt­ist á vef­síð­unni krom.is nýverið er hún með „diploma í fag­inu frá Bristol í Bret­landi.“ Þegar betur er að gáð kemur í ljós að diplóman er frá Fuss Beauty School. Bæði Kristín Heim­is­dóttir, for­maður Tann­lækna­fé­lags Íslands, og Ásta Ósk­ars­dóttir, vara­for­maður sama félags, gera alvar­legar athuga­semdir við þessa aðgerð Krist­ínar. Aðgerðin getur skemmt fyrir lífs­tíð ómót­aðar tennur barna.

Stundin villti á sér heim­ildir og þótt­ist vera for­eldri ferm­ing­ar­barns sem vildi koma í tann­hvíttun. Það var ekk­ert mál að sögn Krist­ínar. Í seinna sam­tali við Stundina segir Kristín að hún hafi fram­kvæmt tann­hvítt­unn þrisvar sinnum á börnum undir sextán ára aldri. „Ég er ekki að gera slæma hluti. Ég er bara föst á ein­hverju gráu svæði út af ein­hverjum lögum og reglum,“ segir Kristín. Stjörnu­bros hefur ítrekað verið aug­lýst hjá aha.is og fann Stundin minnst sjö til­vik þar sem tíma­bundin til­boð voru í boði á vef­síð­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sala á ósönnuðum meðferðum

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár