Fötluð stúlka upplifir sorg en ekki gleði eftir útskrift

Móðir Katrínar Önnu, sem er 19 ára nýstúd­ent, segir sorg hafa tekið við eftir að hún útskrif­að­ist úr fram­halds­skóla. Katrín Anna er fötluð og fá úrræði virð­ast vera í boði.

Móðir Katrínar
Móðir Katrínar Helga Hákon­ar­dóttir vill að fram­tíð­ar­sýn fatl­aðra eftir útskrift verði bjargað. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Mér finnst fram­tíðin ekk­ert vera sér­stak­lega björt fyrir dóttur mína þótt hún hafi verið að útskrif­ast úr fram­halds­skóla. Fram­tíðin á að vera æðis­leg og spenn­andi og það á að vera svo mikið fram undan en hjá henni er það ekki. Mér finnst það vera mjög sorg­legt,“ segir Helga Hákon­ar­dóttir, móðir Katrínar Önnu, sem er 19 ára nýstúd­ent. Katrín Anna er fötluð og fá úrræði virð­ast vera í boði.

Katrín Anna er með mikla þroska­hömlun og dæmi­gerða ein­hverfu, auk sjón­skerð­ingar og athygl­is­brests með ofvirkni.

Katrín lauk nýlega stúd­ents­prófi frá sér­deild Fjöl­brauta­skól­ans við Ármúla, en eftir það tekur alger óvissa við og fyr­ir­sjá­an­legt tóm. „Það eru margir fram­halds­skólar í boði fyrir fatl­aða en svo þegar þeir klára námið þá er nán­ast ekk­ert í boði,“ segir Helga.

Helga seg­ist ekki vita hvað tekur við. „Það er bara óvissa. Bið. Biðlistar. Leit að úrræðum um hvað sé í boði og hvað …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár