Forseti hagfræðideildar: Fjármagnshöftin fólu í sér mannréttindabrot

„Virkir athuga­semdir eltu mig jafn­vel til útlanda,“ segir Ásgeir Jónsson í pistli þar sem hann fjallar um við­tökur bókar sinnar um hrunið sem kom út árið 2009. Segir fækkun „virkra í athuga­semdum“ til marks um betra atvinnu­á­stand á Íslandi.

Forseti hagfræðideildar: Fjármagnshöftin fólu í sér mannréttindabrot

Ásgeir Jónsson, for­seti hag­fræði­deildar Háskóla Íslands, telur að með beit­ingu fjár­magns­hafta eftir hrun hafi verið brotið gegn mann­rétt­indum Íslend­inga. Þetta segir hann í blogg­færslu sem jafn­framt er frétta­bréf Virð­ingar hf, en Ásgeir starfar sem efna­hags­ráð­gjafi hjá fyr­ir­tæk­inu. 

„Beiting hafta á árunum 2008 til vorra daga fól í sér brot á mann­rétt­indum íslenskra þegna og mun fela í sér lang­tíma­kostnað. Það mun taka langan tíma að byggja upp til­trú á krón­unni á nýjan leik. Vandséð að Ísland geti notið full­kom­ins ábata frjálsra utan­rík­is­við­skipta sem sem sér­stakt mynt­svæði þegar litið er fram,“ skrifar Ásgeir.

Ásgeir er dós­ent í hag­fræði við Háskóla Íslands og var aðal­hag­fræð­ingur Kaup­þings á árunum fyrir hrun. Nýlega kom út bókin The Icelandic Financial Crisis: A Study into the World´s Smallest Currency Area and its Recovery from Total Banking Collapse eftir þá Hersi Sig­ur­geirs­son, dós­ent við Við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands. 

Í frétta­bréfi Virð­ingar harmar Ásgeir hve fátæk­legar við­tökur fyrri bók hans um hrunið, Why Iceland?, fékk en hún kom út árið 2009. „Hér heima galt bókin höf­und­ar­ins. Virkum í athuga­semdum – sem voru mjög margir á þessum tíma – fannst að það hefði átt að banna mér að skrifa svona bók en fyrst að skað­inn var skeður ætti fólk að sam­ein­ast um að kaupa hana ekki,“ skrifar hann. „Virkir athuga­semdir eltu mig jafn­vel til útlanda ef ég tók þátt í ráð­stefnum þar ytra og reyndu að leiða óstað­kunn­ugt fólk í allan sann­leika um hvaða mann ég hefði að geyma, en það er önnur saga.“ Segir Ásgeir að nú hafi „virkum í athuga­semdum“ fækkað all­mikið sem hljóti að „bera vott um bætt atvinnu­á­stand“. 

Ásgeir fjallar um helstu nið­ur­stöður bókar þeirra Hersis. Hann segir að ef litið sé á geng­is­lækkun sem efna­hags­legt meðal sé ljóst að lands­menn geti ekki stjórnað skammta­stærð­inni. „Ísland hefði þurft 25% geng­is­lækkun árið 2008 – krónan lækk­aði hins vegar um 75% í frjálsum við­skiptum. Með beit­ingu hafta var hins vegar hægt að fara miðja leið með 50% geng­is­lækkun,“ skrifar Ásgeir og bendir á að allt frá því að Ísland öðl­að­ist full­veldi hafi lands­menn vegið salt á milli þess ann­ars vegar að njóta ábata alþjóða­væð­ingar í opnu hag­kerfi með til­heyr­andi óstöð­ug­leika og hins vegar þess að tryggja stöð­ug­leika með fjár­magns­höftum.

„Árin 2001 til 2008 eru eina tíma­bilið á 100 ára full­veldi þar sem krónan hefur flotið frjáls. Beiting hafta á árunum 2008 til vorra daga fól í sér brot á mann­rétt­indum íslenskra þegna og mun fela í sér lang­tíma­kostnað. Það mun taka langan tíma að byggja upp til­trú á krón­unni á nýjan leik. Vandséð að Ísland geti notið full­kom­ins ábata frjálsra utan­rík­is­við­skipta sem sér­stakt mynt­svæði þegar litið er fram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármálahrunið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár